Ártúnsskóli - leikskóladeild

Leikskóli

Árkvörn 4
110 Reykjavík

Leikskóladeild Ártúnsskóla og leiktæki á lóðinni.

Um leikskólann

 Opnunartími leikskóladeildar er frá 7:30 til 16:30

Ártúnsskóli er samrekinn grunnskóli, leikskóli og frístund. Leikskólinn skiptist í þrjár deildir þar sem 61 börn geta dvalið samtímis. Yngstu börnin eru á Árholti svo fara þau á Lágholt og elstu börnin eru á Háholti. Starfsmenn leikskólans eru um 15 talsins. 

Skólastjóri er Ellen Gísladóttir

Aðstoðarleikskólastjóri er Hólmfríður Hannesdóttir

 

Ártúnsskóli - leikskóladeild

Viltu vita meira um leikskóladeildina? Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. Unnið af Erlu Stefánsdóttur og Antoníu Lárusdóttur fyrir skóla- og frístundasvið. 

Hugmyndafræði

Gildi skólans eru árangur, virðing og vellíðan

 

Einkunnarorðin endurspegla áherslur skólastarfsins í heild. Stefnt er að framúrskarandi árangri, virðing borin fyrir fólki og umhverfi og fjölbreytileikanum fagnað. Skólinn leggur áherslu á heildstæða móðurmálskennslu, umhverfismennt og útikennslu, heilsueflingu, sköpun og lífsleikni.

Leikskólastarf

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Ártúnsskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira. 

Skólanámskrá

Skólanámskrá leikskóladeildar er í vinnslu

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Ártúnsskóla leikskóladeildar? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi.

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar. 

 

Mynd af leikskólalóð Ártúnsskóla

Miðstöð Ártúnsskóla

Ártúnsskóli tilheyrir Austurmiðstöð. Austurmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi og Kjalarnesi og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta.   

 

Myndir frá Ártúnsskóla