Regnbogaland

Frístundaheimili

Foldaskóli við Logafold 1
112 Reykjavík

""

Um Regnbogaland

Opið alla virka daga frá klukkan 13:40 til 17:00

Frístundaheimilið Regnbogaland er starfrækt fyrir börn í 1. – 4. bekk í Foldaskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Brúnni. Leitast er eftir því að hafa starfið sem fjölbreyttast og skapa börnunum heimilislegt og öruggt umhverfi.

Forstöðumaður er Helga Bryndís Kristjánsdóttir

 

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Regnbogalandi frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Regnbogaland er lokað í vetrarleyfi skólans.

Hagnýtar upplýsingar

Frístundadagatal

Í frístundadagatali Regnbogalands má finna hvenær eru heilir dagar, hvenær er lokað og ýmislegt fleira sem mikilvægt er að kynna sér. 

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Regnbogalandi má finna á heimasíðu Foldaskóla

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​