Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2024

Óskað er eftir tilnefningum til mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar 2024. Tilnefna má einstaklinga, hópa, félagasamtök eða stofnanir sem á eftirtektarverðan hátt hafa staðið vörð um mannréttindi. 

Tilnefningar

Tilnefningar ásamt rökstuðningi skulu berast á netfangið mannrettindi@reykjavik.is

Frestur til að skila tilnefningum er til 5. maí 2024.

Handhafi mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar hlýtur að launum kr. 600.000,-

Verðlaunin verða afhent í Höfða af borgarstjóra Reykjavíkur þann 16. maí á mannréttindadegi Reykjavíkurborgar.

Markmið mannréttindaverðlaunanna er að vekja athygli á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og mikilvægi samfélags þar sem mannréttindi eru virt.  

Dómnefnd til verðlaunanna er skipuð af mannréttinda- og ofbeldisvarnarráði Reykjavíkurborgar til eins árs í senn. Hana skipa þrír einstaklingar sem hafa haft aðkomu að jafnréttis- og mannréttindamálum í sínum störfum. 

Áður hafa hlotið mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar: