Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi hljóta Mannréttindaverðlaun

Mannlíf Mannréttindi

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti í dag Samtökum kvenna af erlendum uppruna á Íslandi Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2018 á mannréttindadegi Reykjavikurborgar.

Mannréttindaverðlaunin eru veitt þeim einstaklingum, félagasamtökum eða stofnunum sem hafa á eftirtektarverðan hátt staðið vörð um mannréttindi tiltekinna hópa. Markmiðið með mannréttindadeginum er að vekja athygli á þeim málum sem varða mannréttindi borgarbúa og á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar.

Samtökin hafa staðið að vitundarvakningu á stöðu kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Sögur þeirra í tengslum við #Metoo hafa vakið fólk til umhugsunar um sérstaklega viðkvæma stöðu þessa hóps innan íslensks samfélags. Þær hafa sýnt hugrekki og styrk, verið fyrirmyndir og öflugt tengslanet þeirra hefur orðið afl til þjóðfélagsbreytinga. 

Með því að veita konum af erlendum uppruna mikilvægan og öruggan vettvang þá hafa þær fengið verkfæri til þess að takast á við ofbeldi og mismunun sem þær hafa orðið fyrir.

Innan samtakanna varð til Facebook-hópur þar sem konur gátu deilt erfiðum reynslusögum af ofbeldi, kynferðislegri áreitni, misnotkun og mismunun bæði á heimilum sínum og vinnustöðum.  Samtakamáttur þeirra hefur hjálpað einstaklingum innan hópsins og hvatt til aðgerða sem stuðla að auknu jafnræði innan stjórnkerfisins og á vinnumarkaði þegar kemur að réttindum kvenna af erlendum uppruna.

Borgarstjóri sagði við afhendingu verðlaunanna að samtökin hafi skapað mikilvægan vettvang og samstöðuafl fyrir konur alls staðar að úr heiminum, sem búsettar eru á Íslandi, til þess að láta raddir sínar heyrast. Verðlaunin að þessu sinni eru 600 þúsund krónur.

Hvatningarverðlaun mannréttindaráðs 2018

Elín Oddný Sigurðardóttir, formaður mannréttindaráðs afhenti Loga Sigurfinnssyni forstöðumanni Sundhallarinnar og Laugardalslaugar hvatningarverðlaun mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar.  Hvatningarverðlaunin eru veitt fyrir þróunar- og nýbreytnistarf einstaklinga, borgarstofnanna og fyrirtækja á sviði mannréttindamála. Logi hlýtur verðlaunin fyrir að hafa með frumkvæði og dugnaði  tryggt jafnt aðgengi fyrir alla að sundstöðunum.  Þá hlaut verkefnið Móttaka nýrra íbúa verðlaunin fyrir að taka heildstætt á móti fjölskyldum með annað móðurmál en íslensku og veita fræðslu um hvernig þjónusta borgarinnar virkar innan hverfis. Samstarfsaðilar eru Árbæjarskóli, Ársel og Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts.