Móðurmál – Samtök um tvítyngi á Íslandi fá Mannréttindaverðlaunin 2019

Mannréttindi Mannlíf

""

Móðurmál – Samtök um tvítyngi á Íslandi hlaut Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2019 og réttindaráð Hagaskóla hlaut hvatningarverðlaun mannréttinda- og lýðræðisráðs 2019 við hátíðlega athöfn í Höfða í dag.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti í dag Móðurmáli - Samtökum um tvítyngi á Íslandi  Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2019 á mannréttindadegi borgarinnar.

Mannréttindaverðlaunin eru nú veitt í tólfta sinn en þau eru veitt þeim einstaklingum, félagasamtökum eða stofnunum sem hafa á eftirtektarverðan hátt staðið vörð um mannréttindi tiltekinna hópa. Markmiðið með mannréttindadeginum er að vekja athygli á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og mikilvægi samfélags þar sem mannréttindi eru virt.

Móðurmál – samtök um tvítyngi eru regnhlífarsamtök móðurmálskennsluhópa sem kenna börnum innflytjenda móðurmál þeirra eða foreldra þeirra. Starfsemin grundvallast á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, þar sem segir að menntun barns skuli efla virðingu barnsins fyrir menningararfleifð sinni og tungu.

Í umsögn  valnefndar kemur fram að Samtökin hafi unnið gífurlega mikilvægt starf undanfarinn aldarfjórðung við að kenna börnum innflytjenda móðurmál sitt, styrkja erlenda foreldra í að viðhalda móðurmáli barna sinna og við að byggja upp þekkingu og reynslu í móðurmálskennslu á Íslandi.

Við afhendingu verðlaunanna í dag sagði borgarstjóri: „Þegar starfsemi Móðurmáls, árangur af starfinu og faglegur metnaður er skoðaður er ótrúlegt til þess að hugsa að það er nánast allt unnið í sjálfboðavinnu. Samtökin, eiga mikið hrós skilið fyrir öflugt og óeigingjarnt starf til að efla lífsgæði barna og gera Reykjavík að betri borg“.

Réttindaráð Hagaskóla hljóta hvatningarverðlaun mannréttinda- og lýðræðisráðs 2019

Gunnlaugur Bragi Björnsson, varaformaður mannréttinda- og lýðræðisráðs afhenti fulltrúum réttindaráðs Hagaskóla hvatningarverðlaun mannréttinda- og lýðræðisráðs. Hvatningarverðlaunin eru veitt fyrir  þróunar- og nýbreytnistarf á sviði mannréttinda- og lýðræðismála fyrir verkefni sem styðja við mannréttindavernd og lýðræðiseflingu. Réttindaráð Hagaskóla og aðrir nemendur sýndu eftirtektarvert fordæmi með undirskriftasöfnun og kröfugöngu í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að samnemandi þeirra, Zainab Safari, yrði send úr landi.

Í rökstuðningi segir:

„Með aðgerðum sínum vöktu þau mikla athygli á stöðu barna á flótta og mikilvægi þess að virða mannréttindi flóttafólks. Nemendur sýndu samstöðu, hugrekki og gagnrýna hugsun og með því vörpuðu þau ljósi á hversu mikil áhrif einstaklingar geta haft á samfélagið sitt án þess að vera sjálfir í valdastöðu“.