Trans Ísland hlýtur mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2023

Mannréttindi

Að athöfn lokinni. Í efri röð, Anna Kristinsdóttir, mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar, Reyn Alpha, Elías Rúni og Andie Sophia Fontaine, í stjórn Trans Ísland. Í neðri röð, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Ólöf Bjarki Antons, formaður Trans Ísland.
Trans Ísland hlýtur mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2023.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti í dag Ólöfu Bjarka Antons formanni samtakanna Trans Ísland mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2023 en samtökin hafa barist fyrir réttindum trans fólks á Íslandi.

Verðlaunin eru veitt árlega til einstaklinga, hópa, félagasamtaka eða stofnana sem á eftirtektarverðan hátt hafa staðið vörð um mannréttindi.

Verðlaunin voru veitt í Höfða í dag 19. maí, en mannréttindadagur Reykjavíkurborgar er 16. maí og er markmið dagsins að vekja athygli á mannréttindum borgarbúa og mannréttindastefnu borgarinnar.  Það var mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð sem samþykkti á fundi sínum þann 15. maí s.l. að Trans Ísland hlyti verðlaunin. Handhafi verðlaunanna hlýtur að launum kr. 600.000,-.

Rökstuðningur valnefndar

Trans Ísland hefur frá árinu 2007 barist fyrir réttindum trans fólks. Félagið hefur með starfi sínu valdið grundvallarbreytingu á skilningi fólks á kynjajafnrétti. Í gegnum árin hefur félagið staðið fyrir umfangsmikilli fræðslu til almennings um málefni trans fólks og unnið faglega með stjórnvöldum til að tryggja kynrænt sjálfræði og treysta réttindi allra kynja. Trans Ísland vinnur náið með almannaheillasamtökum hér á landi og erlendis gegn vaxandi hatri í garð trans fólks sem og alls hinsegin fólks.

Dagur sagði við afhendingu verðlaunanna að það væri afar mikilvægt að við öll fáum notið mannréttinda. Borgin vinni stöðugt að því að styrkja og standa vörð um þá hópa sem eru berskjaldaðir í samfélaginu, og vill tryggja að öll fái þá þjónustu sem þau eiga rétt á, og halda ávallt mannréttindum á lofti.

Til hamingju Trans Ísland með mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2023.

Áður hafa hlotið mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar:

  • Trans Ísland 2023
  • Pepp Ísland, grasrót fólks í fátækt 2022
  • Rótin, félag um konur áföll og vímugjafa 2021
  • Solaris hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi 2020
  • Móðurmál – Association of Bilingualism 2019
  • Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi – W.O.M.E.N. Á Íslandi 2018
  • Með okkar augum 2017
  • Þórunn Ólafsdóttir 2016
  • Frú Ragnheiður 2015
  • Geðhjálp 2014
  • Kvennaathvarfið 2013
  • List án landamæra 2012
  • Hinsegin dagar 2011
  • Blátt áfram 2010
  • Rauði Kross Íslands 2009
  • Alþjóðahús 2008