Leikskóli í Vogabyggð

Í hönnun

Naustavogur 13
105 Reykjavík

Leikskólabörn í legó

Um leikskólann

Leikskóli í Vogabyggð mun rísa ásamt nýjum grunnskóla og rúma 140 börn. Stefnt er að því að hann taki til starfa á árinu 2027. Hann mun leysa af hólmi Ævintýraborg við Naustavog. 

Leikskólinn er liður í verkefnaáætluninni Brúum bilið sem miðar að því að fjölga leikskólaplássum og brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. 

Leikskólar Reykjavíkurborgar vinna eftir aðalnámsskrá leikskóla með Menntastefnu Reykjavíkurborgar til hliðsjónar. Þar er lögð áhersla á að hvetja barnið til uppgötvunar og leiks og gera það að virkum þátttakanda í lýðræðissamfélagi.

Athugið að áætlaðar dagsetningar um verklok geta breyst, þar sem þættir á borð við aðgengi að aðföngum, afleiðingar heimsfaraldurs og ófriðar á alþjóðavettvangi geta haft áhrif á framgang framkvæmda.  Ennfremur getur ráðningarstaða haft áhrif á tímasetningar varðandi inntöku barna.