Kátakot
Frístundaheimili
Klébergsskóli á Kjalarnesi
Kollagrund 2
116 Reykjavík
Um Kátakot
Frístundaheimilið Kátakot er fyrir öll börn í 1.-4. bekk í Klébergsskóla. Þar er börnum boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf eftir að skóladegi lýkur. Leitast er við að bjóða upp á spennandi viðfangsefni sem veita börnum útrás fyrir leik- og sköpunarþörf. Frístundaheimilið er staðsett í norður álmu Klébergsskóla.
-
Skólastjóri: Sigrún Anna Ólafsdóttir
Lengd viðvera
Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Kátakoti frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Kátakot er lokað í vetrarleyfi skólans.
Hagnýtar upplýsingar
Gjaldskrá
Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira.
Einelti í skóla- og frístundastarfi
Einelti og ofbeldi getur haft varanleg áhrif á sálarlíf barna og unglinga. Það á ekki að viðgangast í skóla- og frístundastarfi. Allir starfsstaðir barna og unglinga eru með áætlun gegn einelti. Foreldrar sem fá vísbendingar eða upplýsingar um einelti ættu að taka það alvarlega og tilkynna til viðkomandi aðila. Starfsstaðir skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar starfa eftir gátlista vegna eineltis sem unninn var í víðtæku samráði fagaðila.
Röskun á skóla- og frístundastarfi
Tilmæli eru um viðbrögð foreldra / forráðamanna barna í skólum og frístundastarfi. SHS hefur verið falið af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu að fylgjast með veðri og veðurspám og senda út tilkynningar ef á þarf að halda, eftir atvikum í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld.
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Kátakoti má finna á heimasíðu Klébergsskóla.