Kastali

Frístundaheimili

Húsaskóli við Dalhús 41
112 Reykjavík

""

Um Kastala

Opið alla virka daga frá klukkan 13:40 til 17:00

Frístundaheimilið er starfrækt fyrir börn í 1. – 4. bekk í Húsaskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Brúnni. 
Leitast er eftir því að hafa starfið sem fjölbreyttast og skapa börnunum heimilislegt og öruggt umhverfi. 

Forstöðumaður er Erla Bára Ragnarsdóttir

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Kastala frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Kastali er lokaður í vetrarleyfi skólans.

Dagleg starfsemi

Frístundaheimilið er starfrækt fyrir börn í 1. – 4. bekk. Það opnar eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur og er opið til kl. 17:00. Mikil aðsókn er í frístundaheimilið hjá öllum árgöngum og er það okkar sérstaða hvað 4. bekkur er duglegur að mæta í Kastala. 1. og 2. bekkur er mikið í samstarfi í frjálsum leik og smiðjum. Starfið í 3. og 4. bekk er fjölbreyttara og mikið er lagt í skipulag starfsins fyrir elstu börnin. 4. bekkur t.d. setur upp leikrit á hverju ári, skipuleggur og fer í útskriftarferð í maí og fær mánaðardagskrá sem miðar af smiðjum og klúbbum, svipað og lítil félagsmiðstöð.

Hagnýtar upplýsingar

Frístundadagatal

Í frístundadagatali Kastala má finna hvenær eru heilir dagar, hvenær er lokað og ýmislegt fleira sem mikilvægt er að kynna sér. 

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Kastala má finna á heimasíðu Húsaskóla.

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​