Verkfærakista starfsfólks - kynjafræðsla

Hópur fólks að taka á móti nýjum starfsmanni.

Í verkfærakistunni má meðal annars finna fræðslu, gagnlegar vefsíður, greinar, myndbönd og gátlista

Vefsíður

Agenda er vefsíða með allskonar fræðslu og verkefnum um kynjajafnrétti og sambandsfræðslu. Mikið af fjölbreyttu og gagnlegu efni er hægt að finna á þessari síðu. Efni: Jafnrétti - Kynjafræði - Sambönd

Lifting limits er góð vefsíða þar sem fjallað er um kynjafordóma í skólakerfinu. 

Réttindaskóli og Réttindafrístund UNICEF - hugmyndafræðin tekur mið af Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og miðar að því að auka virðingu, vernd og innleiðingu mannréttinda. Áhersla er lögð á að skapa umhverfi sem byggist á þátttöku, jafnrétti og virðingu. Í verkefnaheftinu má finna fjölmörg verkefni og hugmyndir sem nýtast í starfi.

Spark movement er frábær vefsíða með kynja og kynfræðslu.

Tabú – feminísk fötlunarhreyfing - á vefsíðu Tabú  eru margvíslegar upplýsingar um stöðu fatlaðs fólks, mannréttindi, reynslusögur, fréttir, pistlar um feminískan fötlunaraktívisma og margt fleira.

Vefur barnasáttmála SÞ - á þessum vef má finna fróðleik, verkefni, kennsluhugmyndir og leiki  út frá barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og mannréttindum barna.

Umboðsmaður barna - á vef umboðsmanns barna má finna fjölbreytt efni sem tengist barnasáttmálanum og réttindum barna í víðum skilningi

UNICEF á Íslandi - hér má finna mikið af áhugaverðum upplýsingum um réttindi barna.

Youmo

Frábær sænskur fræðsluvefur um allt mögulegt sem tengist kynheilbrigði og unglingsárunum. Þessi síða er á sex tungumálum og geymir glærur, myndbönd, greinar og ýmislegt gagnlegt til að nota í kennslu.

fdgd

Rásin

Rásin er hlaðvarp á vegum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar þar sem rætt er við sérfræðinga og starfsfólk borgarinnar um margvísleg málefni er snúa að borgarbúum og þjónustu við þá. Markmið þáttanna er að veita innsýn í skóla- og frístundastarfið og þau málefni sem þar eru efst á baugi hverju sinni.

Teikning af fólki að veita og þiggja þjónustu.

Fræðslumyndbönd

Fjöltyngd kennsla - tvö stutt myndbönd um hugmyndafræði fjöltyngdrar kennslu. Höfundur er Roma Chumak-Horbatsch

Fyrirlestur um ADHD - í þessu myndbandi er farið yfir hagnýtar leiðir í kennslu barna með ADHD og hvernig hægt er að auka getu þeirra til náms. 

Reiðir drengir á netinu - Christian Vorre Mogensen, sérfræðingur hjá Center for Digital Youth Care í Kaupmannahöfn fjallar um hvernig og hvers vegna drengjum og ungum mönnum hættir til að sækja í einangruð samfélög á netinu.

Reynslusaga af því að rekast á í skólakerfinu

Í Þessum einlæga fyrirlestri fjallar Björgvin Páll Gústavsson um reynslu sína af því að vera strákur sem rakst á í skólakerfinu. Fyrirlesturinn var tekinn upp í tilefni af ráðstefnunni En ég var einn – Sjálfsmynd stráka og kerfið 

Teikning af persónu hlaupa úti í náttúrunni.

Bækur

Kynjafræði fyrir byrjendur er rafbók  sem ætluð er fyrir framhaldsskólanemendur en bókin hentar þó að mestu leyti einnig fyrir nemendur í elstu bekkjum grunnskóla. Í bókinni má finna upplýsingar um femínisma, karlafræði, áhrif fjölmiðla, kvennasöguna, kynlífsmenningu og klámvæðingu og margt fleira sem hefur bein áhrif á ungt fólk. Kaupa þarf aðgang að bókinni. 

Jafnrétti - í þessu riti er fjallað um jafnréttismenntun á öllum skólastigum og hvernig skapa má tækifæri í skólastarfi fyrir alla til að þroskast á eigin forsendum í anda umburðarlyndis og jafnréttis. Efni: Jafnrétti - Samskipti - Sjálfsmynd - Sjálfstraust - Staðalímyndir

Karlmennska og jafnréttisuppeldi er bók um birtingarmyndir karlmennskunnar og áhrif hennar. Aftast í bókinni er hægt að nálgast kennsluverkefni. Efni: Jafnrétti - Kynjafræði - Karlmennska - Kynhlutverk

Virðing og umhyggja – ákall 21. aldar er áhugaverð bók eftir Sigrúnu Aðalbjarnardóttur um mikilvægi virðingar, umhyggju, vináttu og kærleiks í samskiptum fólks.

Handbækur um mannréttindi

Litli Kompás fyrir börn er handbók um mannréttindamenntun fyrir börn á aldrinum 7-13 ára.

Kompás fyrir ungt fólk - hér er mannréttinda handbókin Kompás í heild sinni. Bókin inniheldur fræðslu og verkefni tengd mannréttindum.

Jafnrétti kynjanna - hér er kafli um jafnrétti kynjanna úr Litla Kompás fyrir börn. Efni: Jafnrétti - Staðalímyndir - Mismunun - Kynjafræði

Töfrandi tungumál

Í leikskólanum Miðborg hefur verið unnið að þróunarverkefninu Töfrandi tungumál. Verkefnið felst í því að innleiða kennsluaðferð sem kallast LAP (Linguistically Appropriate Practice) þar sem heimamál allra barna eru eðlilegur hluti af skólastarfinu.

Teikning af hópi hlæjandi barna.

Samskiptabókin

Tvítyngdar samskiptabækur eru hagnýt leið til að auka orðaforða og stuðla að virku tvítyngi, þ.e. að barnið viðhaldið og efli móðurmál sitt um leið og það nær tökum á íslensku sem öðru máli.

Teikning af tveimur krökkum sem sitja á gólfi og lesa.

Leiðarvísir um stuðning við móðurmál

Hér má finna leiðarvísi á íslensku, ensku og pólsku um stuðning við móðurmál barna og virkt tvítyngi.

Teikning af kennara að skoða skóladagatalið

Fræðsla og skýrslur

ART EQUAL er vettvangur fyrir fagfólk sem starfar með ungum börnum og vill gera list og menningu aðgengilega í daglegu lífi þeirra.

Kvennabaráttan – Hvað einkennir hverja bylgju femínismans? Femínismi er stefna sem berst fyrir jafnrétti kynjanna og mannréttindum kvenna og kvára en hugmyndir og baráttuaðferðir hans hefur tekið breytingum og þróast síðustu áratugi.

Millimenningarfræðsla - hér eru kynningar, fræðsla og gagnkvæm skoðanaskipti til að efla jákvætt viðhorf, afla sér þekkingar og færni kennara og starfsfólks til að koma til móts við fjölbreyttar þarfir nemenda. Áherslan er lögð á helstu upplýsingar um viðkomandi land og málumhverfi, um skólakerfið og foreldrasamstarf.

Nú skal segja er skýrsla um þróunarverkefni sem unnið var í leikskólanum Geislabaug og snerist um kynjajafnrétti í leikskólastarfi. Efni: Jafnrétti - Mannréttindi - Samvinna - Sjálfsmynd - Sjálfstraust - Staðalímyndir

Saga Steinunnar - hér rekur Steinunn Ása Þorvaldsdóttir sína eigin sögu og reynslu af fordómum og ofbeldi. Útgáfa bæklingsins er hluti af verkefninu Saman gegn ofbeldi.

Staðalmyndir - hér eru ýmsir punktar sem gott getur verið fyrir kennara að hafa í huga varðandi staðalmyndir og hvernig vinna má gegn þeim í kennslustundum/kennslustofunni. Efni: Forvarnir - Jafnrétti - Mannréttindi - Sjálfsmynd - Staðalmyndir

Kynjuð leikföng

Hér má finna fræðslu um muninn á kröfunum til barna eftir því hvort þau fæðist í bleika eða bláa boxið.

Efni: Jafnrétti - Karlmennska - Kvenleiki - Kynhlutverk - Staðalmyndir

Barnabækur og kyn

Hér er grein um kynin í barnabókum sem ber heitið "Strákar gera en stelpur eru: Kynjaskipting og markaðssetning eftir kyni í útgáfu barnabóka"

Efni: Jafnrétti - Félagsmótun - Kynhlutverk - Staðalímyndir

Gátlistar um kynjajafnrétti

Gátlistar um jafnrétti útbúnir voru af Jafnréttisskólanum fyrir starfsfólk í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi.  Þeir nýtast vel til að ræða og íhuga hversu vel er gætt að margbreytileika og jafnrétti á starfsstaðnum.

Efni: Jafnrétti - Gátlisti - Kynjajafnrétti - Forvarnir - Mannréttindi -Samskipti - Sjálfsmynd - Staðalmyndir - Styrkleikar

Gátlistar um jafnrétti

Gátlistar til að skoða stöðu jafnréttis í leikskólum og grunnskólum. Nýtast vel fyrir starfsfólk til að ræða og íhuga hversu vel er gætt að margbreytileika og jafnrétti á starfsstaðnum.

 

Jafnréttis og mannréttinda gátlisti

Gátlisti fyrir starfsfólk í hópastarfi varðandi jafnrétti og mannréttindi.

Viðfangsefni: Andleg og félagsleg vellíðan, Barnasáttmálinn, Jafnrétti, Mannréttindi, Staðalmyndir