Starfsfólk - verkfærakista
![Teikning af fólki að spjalla saman.](/sites/default/files/hanna_illustrations/hopur.png)
Í verkfærakistunni má meðal annars finna fræðslu, gagnlegar heimasíður, allskyns skýrslur og gátlista sem snúa að ýmsu sem viðkemur kynjajafnrétti og hinsegin réttindum. Vinna með gátlistana getur verið gagnleg fyrir skóla í innleiðingu á kennsluefni fyrir kynja- og hinseginfræði samhliða öðru kennslu efni.
Kynjafræðsla
Hér má finna gagnlega fræðslu, leiðbeiningar, gátlista og verkefni í kynjafræðslu.
![Teikning af dansandi pari](/sites/default/files/2021-12/par_dansar.png)
Hinseginfræðsla
Hér má finna fræðslu, kveikjur, vefsíður og gátlista sem snúa að hinseginfræðslu.
![kennari með hinsegin fána](/sites/default/files/media-library/kennari_0.png)
Ákvæði um jafnréttismenntun barna
Í lögum nr.150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna eru skýr ákvæði um að á öllum skólastigum skulu nemendur hljóta fræðslu um jafnréttismál. Jafnrétti er jafnframt ein af grunnstoðum menntunar samkvæmt aðalnámskrá leik- og grunnskóla. Kyn og kynhneigð eru meðal þeirra þátta sem falla undir jafnrétti í aðalnámskrá og er áhersla lögð á að jafna möguleika drengja og stúlkna. Einnig eru tilgreindar fræðigreinar sem er talið eðlilegt að séu nýttar í skólastarfinu, en meðal þeirra eru kynjafræði og hinseginfræði.
Menntastefna Reykjavíkurborgar
Menntastefna Reykjavíkurborgar byggir á fimm grundvallarþáttum: félagsfærni, sjálfseflingu, læsi, sköpun og heilbrigði. Meðal þeirrar hæfni sem skal rækta er tilfinningalæsi, réttlætiskennd og leiðtogahæfni. Einnig skal rækta skýra og sterka sjálfsmynd barna og heilbrigði og vellíðan í daglegu lífi. Jafnréttismenntun, þ.m.t. kynja- og hinseginfræðsla er nauðsynleg til þess að tryggja að grundvallarþættir menntastefnunnar nái til allra barna, en ekki bara sumra.