Hverfadagar borgarstjóra 2025 - Laugardalur


Hverfadagar borgarstjóra í Laugardal

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri mun heimsækja hverfi borgarinnar næstu vikur og mánuði.

Á hverfadögum mun borgarstjóri heimsækja skóla og stofnanir borgarinnar, hitta starfsfólk borgarinnar í hverfinu, ræða við íbúa og fulltrúa félagasamtaka, íþróttafélaga og foreldrafélaga auk þess að bjóða upp á opna viðburði þar sem fólk getur rætt málin við hana og fulltrúa yfirstjórnar borgarinnar.

Hverfadagar í Laugardal verða dagana 23.-27 febrúar.

 

Loftmynd yfir Laugardal.

Sérkenni hverfisins

Laugardalur er næstfjölmennasta hverfi borgarinnar. Þar búa tæplega tuttugu þúsund manns. 

Metnaðarfullt skóla- og félagsstarf er í hverfinu, ásamt frábærri þróttaaðstöðu. Laugardalurinn er í hjarta hverfisins þar sem borgarbúar stunda útivist og hreyfingu með fjölbreyttum hætti. Þar er glæsileg aðstaða til íþróttaiðkunar af ýmsu tagi og má nefna Laugardalsvöll, Laugardalshöll og æfingasvæði Þróttar að ógleymdri Laugardalslauginni. Einnig er tíu holu frisbígólfvöllu

Í hverfinu er fjölbreytt afþreying á borð við Skautahöllina og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, sem er skemmti- og dýragarður í hjarta borgarinnar. Einnig er tilvalið að heimsækja Grasagarðinn, þar sem finna má um fimm þúsund íslenskar og erlendar plöntur.

Dagskrá heimsóknar borgarstjóra

Á meðan á hverfadögunum stendur mun Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri heimsækja Háteigsskóla, Hlíðaskóla og Menntaskólanna í Hamrahlíð.

Hún mun funda með fulltrúum foreldrafélaga skólanna og spjalla við skólastjórnendur og annað starfsfólk. Þá mun hún kynna sér aðra starfsemi borgarinnar í hverfinu og funda með félagasamtökum, forsvarsfólki íþróttafélaga.

Þriðjudaginn 24. febrúar verður íbúum boðið í kaffi og spjall í Borgarbókasafninu Sólheimum. Þar gefst gott tækifæri til að ræða málin við borgarstjóra og fulltrúa úr yfirstjórn borgarinnar. 

 

Laugardalur

Hverfadagar borgarstjóra verða haldnir í öllum hverfum borgarinnar.

Hverfadagar í Laugardal hefjast 23. febrúar.