Hverfadagar Heiðu Bjargar borgarstjóra eru hafnir í Laugardal

Laugardalurinn, loftmynd yfir Grasagarð Reykjavíkur.
Laugardalurinn, loftmynd yfir Grasagarð Reykjavíkur.

Hverfadagar Heiðu Bjargar borgarstjóra hófust í morgun í Laugardal og munu standa yfir til 27. febrúar.

Á hverfadögum mun borgarstjóri heimsækja leik- og grunnskóla hverfisins og heilsa upp á nemendur og kennara. Heiða Björg mun heimsækja Laugarnesskóla, frístundaheimilið Glaðheima, félagsmiðstöðina Þróttheima, Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur, Virknimiðstöðina og Ljósið. Hún mun einnig eigafund með stjórnum foreldrafélaga í Laugardal.

Þriðjudaginn 24. febrúar býður borgarstjóri upp á kaffi og spjall í Borgarbókasafninu Sólheimum klukkan 17:00 til 18:00. Öll velkomin.

Boðið verður upp á léttar veitingar og gestir og gangandi geta rætt málin við hana og fulltrúa yfirstjórnar borgarinnar.

Hverfadögum borgarstjóra lýkur þann 27. febrúar.