Laugardalslaug
Mán.-fös. kl. 6:30–22:00
Lau.–sun. kl. 8:00-22:00
Sundlaugavegur 30
105 Reykjavík

Frá og með 1. ágúst 2022 verður frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar fyrir börn þar til þau ljúka grunnskóla, það er 1. ágúst árið sem þau verða 16 ára.
Inneignir á 6 og 12 mánaða kortum og 10 skipta kortum verða endurgreiddar eða færðar inná önnur kort innan fjölskyldu. Ef kort er skráð ekki á kennitölu þarf fyrst að koma við í afgreiðslu sundlauga og láta skrá það á kennitölu. Athugið að hver skráning gildir fyrir eitt kort.
Hvað kostar í sund?
Börn (0-16* ára) Frítt
Börn (16*-17 ára) - 195 kr.
Fullorðnir (18 ára og eldri) - 1.210 kr.
Eldri borgarar 67 ára og eldri - Frítt
*Miðað er við 1. ágúst afmælisárið

Aðstaða í og við Laugardalslaug
- 50 metra laug
- Aðgengi í laug fyrir fatlaða
- Barnalaug
- Barnarennibraut
- Eimbað
- Fritt WiFi
- Heitir pottar
- Hlaupaleiðir
- Hreystibraut
- Innilaug
- Kaldur pottur
- Klór framleiddur úr salti
- Minigolf
- Nuddpottur
- Rennibraut
- Sala á sundfatnaði
- Sérklefi
- Sjópottur
- Strandblak
- Ungbarnaaðstaða
- Útiklefar
- Vaðlaug
- Veitingasala
- Wipeout braut
Aðgengi
Sér skiptiklefi og sturta
Aðgengi án þess að þurfa að fara í almenna klefa
Lyfta ofan í laug
Hjólastólaaðgengi að sjópotti
Hjólastólaaðgengi að innilaug
Hjólastólaaðgengi að eimbaði
Göngugrindur
Salerni í klefum og skiptiklefa

Dagskrá
Skólasund og sundæfingar
Innilaug Laugardalslaugar er aðallega æfinga- og keppnislaug en gestir eru velkomnir að nýta hana þegar ekki eru æfingar.
Sundleikfimi
Sundleikfimi er í boði fyrir öll á eftirfarandi tímum:
Mánudagar | kl. 8:45 | úti |
Þriðjudagar | kl. 9:30 | úti |
Miðvikudagar | kl. 8:45 | úti |
Fimmtudagar | kl. 9:30 | úti |
Sundnámskeið
Skriðsundsnámskeið er á vegum Sund og einkaþjálfun hjá Lóló.
Strandblak
Glæsilegir strandblakvellir eru við Árbæjarlaug og Laugardalslaug sem gestir geta nýtt sér endurgjaldslaust. Til að nýta sér vellina þarf að bóka tíma.
Nokkrar reglur gilda um vellina
- Aðgangur að velli greiðist í afgreiðslu eins og um hefðbundna sundferð sé að ræða.
- Mest má bóka 2 klst. í einu.
- Nauðsynlegt er að afbóka völl verði hann ekki notaður.
- Gengið er í gegnum laugarsvæði sunnanvert og í gegnum skóg til að komast að völlunum.
- Ekki er leyfilegt að ganga á skóm yfir laugarsvæði. Fáið bláar plasthlífar í afgreiðslu til að setja yfir skó ef þarf.
- Blakarar koma sjálfir með bolta.
- Að loknum leik skal laga völlinn til með sköfum sem eru staðsettar við vellina.
- Til að lágmarka sand í sturtum og búningsklefum að leik loknum skulu notendur skola af fótum í vatnshana sem staðsettur er á laugarbakka.