Hverfadagar borgarstjóra 2025 - Grafarholt og Úlfarsárdalur
Hverfadagar borgarstjóra í Grafarholti og Úlfarsárdal
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri mun heimsækja hverfi borgarinnar næstu vikur og mánuði.
Á hverfadögum mun borgarstjóri heimsækja skóla og stofnanir borgarinnar, hitta starfsfólk borgarinnar í hverfinu, ræða við íbúa og fulltrúa félagasamtaka, íþróttafélaga og foreldrafélaga auk þess að bjóða upp á opna viðburði þar sem fólk getur rætt málin við hana og fulltrúa yfirstjórnar borgarinnar.
Fyrstu Hverfadagarnir hefjast í Úlfarsárdal og Grafarholti mánudaginn 8. september.
Sérkenni hverfisins
Meðal helstu sérkenna Grafarholts og Úlfarsárdals er einstök nálægð við náttúruna.
Hverfið skartar til dæmis perlum á borð við Reynisvatn, Hólmsheiði og Rauðavatn, sem skapa endalaus tækifæri til útivistar og hreyfingar.
Vinsælar hjóla- og gönguleiðir liggja víða og Úlfarsfellið býður upp á frábærar gönguleiðir fyrir fólk á öllum aldri.
Í hverfinu er ennfremur aðstaða fyrir hestafólk, flottur frisbígolfvöllur, á annan tug opinna leiksvæða að ógleymdum fyrsta flokks golfvelli.
Dagskrá heimsóknar borgarstjóra
Á meðan á hverfadögunum stendur mun Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri heimsækja Dalskóla, Ingunnarskóla og Sæmundarskóla á Hverfadögum í Úlfarsárdal og Grafarholti. Hún mun funda með fulltrúum foreldrafélaga skólanna og spjalla við skólastjórnendur og annað starfsfólk. Þá mun hún kynna sér aðra starfsemi borgarinnar í hverfinu og funda með félagasamtökum, forsvarsfólki íþróttafélaga og skella sér í sund í Dalslaug.
Mánudaginn 8. september verður íbúum boðið í göngu og spjall um hverfið þar sem gott tækifæri gefst til að ræða málin við borgarstjóra og fulltrúa úr yfirstjórn borgarinnar. Boðið verður upp á kaffi og kakó og mun gefast tækifæri til að spjalla við borgarstjóra fyrir göngu ef fólk hefur ekki möguleika á að taka þátt.
Hittumst á bílastæðinu við Sæmundarskóla klukkan 17:00.
Grafarholt og Úlfarsárdalur
Hverfadagar borgarstjóra verða haldnir í öllum hverfum borgarinnar.
Fyrsta heimsóknin er í Grafarholt og Úlfarsárdal miðvikudaginn 8. september.