Dalslaug
Mán.–fös. kl. 6:30–22:00
Lau.–sun. kl. 9:00–22:00
Úlfarsbraut 128
113 Reykjavík
Dalslaug
Dalslaug er nýjasta sundlaug Reykjavíkur. Þar er útilaug, innilaug, heitir pottar, kaldur pottur, eimbað og vatnsrennibrautir sem opnaðar voru árið 2023. Laugin er sérstaklega vinsæl meðal fjölskyldna og íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal. Auðvelt er að fara á milli lauga og potta og stemningin er afslöppuð. Tilvalið er að koma síðan við á Borgarbókasafninu í Úlfarsárdal sem staðsett er í sömu byggingu.
Aðstaða í og við Dalslaug
- 25 metra laug
- Aðgengi í laug fyrir fatlaða
- Barnalaug
- Eimbað
- Fritt WiFi
- Heitir pottar
- Innilaug
- Kaldur pottur
- Nuddpottur
- Rennibraut
- Sérklefi
- Vaðlaug
- Veitingasala
- Yfirbyggð hjólastæði
Aðgengi og sérklefar
Við viljum að öllum líði vel í sundlaugum Reykjavíkur. Þess vegna er lögð áhersla á gott aðgengi, þægilega aðstöðu og fjölbreytta möguleika fyrir ólíkar þarfir. Hér er yfirlit um aðgengi og sérklefa í öllum sundlaugum Reykjavíkur.
Dagskrá
Skólasund og sundæfingar í Dalslaug
Innilaugin er lokuð á eftirfarandi tímum vegna skólasunds:
| Mánudagar | kl. 8:30-14:30 |
| Þriðjudagar | kl. 8:30-13:10 |
| Miðvikudagar | kl. 8:30-09:50 og 10:20-14:30 |
| Fimmtudagar | kl. 08:20-14:30 |
| Föstudagar | kl. 08:30-10:30 og 12:20-13:50 |
Í útilaug eru ýmist nokkrar brautir í notkun vegna skólasunds á eftirfarandi tímum:
| Mánudagar | kl. 8:45-12:00 og 12:50-15:45 |
| Þriðjudagar | kl. 8:30-09:50 og 10:20-14:30 |
| Miðvikudagar | kl. 8:20-09:50 og 10:10-12:30 og 13:10-15:45 |
| Fimmtudagar | kl. 08:30-09:50 og 10:20-15:45 |
| Föstudagar | kl. 8:30-12:20 |