No translated content text
Hekla
Félagsmiðstöð fyrir 10–12 ára
Þorragata 3
102 Reykjavík
Opnunartími er alla virka daga frá því að skóladegi lýkur til kl 17:00
Félagsmiðstöðin Hekla er hluti af félagsmiðstöðinni Öskju og markhópurinn eru börn og unglingar í 5. - 7. bekk í Klettaskóla. Hekla er hluti af félagsmiðstöðvastarfi í Laugardal-, Háaleiti- og Bústaðahverfi og er starfrækt af Kringlumýri, frístundamiðstöð.
Forstöðukona er Aþena Marey Birkisdóttir
Dagleg starfsemi
Í Heklu leggjum við mikla áherslu á tómstundastarf og viljum við að börnin eflist í gegnum leik. Á hverjum degi er hægt að velja á milli þriggja valmöguleika. Það getur til dæmis verið útivera, föndur, leikir, boltaland, karókí, bingó og ýmislegt annað spennandi sem börnum og starfsfólki dettur í hug að gera.
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í félagsmiðstöðinni Heklu má finna á heimasíðu Klettaskóla
Myndir frá Heklu
Hvað viltu skoða næst?
- Félagsmiðstöðvar Frístundastarf fyrir 10-16 ára börn
- Foreldrasamstarf í skóla- og frístundastarfi Þátttaka foreldra skiptir miklu máli
- Fjölmenning í skóla- og frístundastarfi Öll börn eiga að fá jöfn tækifæri til að vera stolt af uppruna sínum og menningu
- Sumarnámskeið Sumarið er tíminn
- Frístundastarf fatlaðs fólks Fjölbreytt frístundastarf er rekið á vegum borgarinnar fyrir fatlað fólk: börn, unglinga og fullorna.
- Frístundastyrkur - Frístundakortið Frístundakortið er styrkjakerfi frístundastarfi fyrir 6-18 ára börn og unglinga með lögheimili í Reykjavík.