Gleðibankinn

Félagsmiðstöð fyrir 10–16 ára

Hlíðaskóli, Hamrahlíð 2
105 Reykjavík

Hlíðaskóli og skólalóðin

Félagsmiðstöðin Gleðibankinn er ein af fimm félagsmiðstöðvum í Miðborg, Hlíðum og Vesturbæ sem starfrækt er af Tjörninni, frístundamiðstöð. Markhópurinn er börn og unglingar í 5.-10.bekk í Hlíðaskóla.

Félagsmiðstöðin vinnur í nánu samstarfi við stjórnendur Hlíðaskóla. Einnig er áhersla lögð á samvinnu við foreldra/forráðamenn í hverfinu. Félagsmiðstöðin er opin öllum þeim sem hafa áhuga á því að kynna sér starfsemi okkar.

Forstöðumaður er Gunnlaugur Víðir Guðmundsson s. 695-5215

Aðstoðarforstöðukona er Anna Margrét Káradóttir

Opnunartímar

5.-6. bekkur

Miðvikudagar:  15:30-17:00
Föstudagar:      17:00-18:45

7. bekkur

Miðvikudagar: 17:00-18:45
Föstudagar:     17:00-18:45

8.-10. bekkur

Mánudagar:     19:30-21:45
Þriðjudagar:     14:30-17:00
Miðvikudagar:  19:30-21:45
Föstudagar:     19:30-22:00

Opið í frímínútum og í hádegi á fimmtudögum.

Opið klúbbastarf

Gleðibankinn býður upp á fjölbreytt klúbbastarf utan opnunartíma í samráði við þátttakendur.

Hagnýtar upplýsingar

Einelti í skóla- og frístundastarfi

Einelti og ofbeldi getur haft varanleg áhrif á sálarlíf barna og unglinga. Það á ekki að viðgangast í skóla- og frístundastarfi. Allir starfsstaðir barna og unglinga eru með áætlun gegn einelti. Foreldrar sem fá vísbendingar eða upplýsingar um einelti ættu að taka það alvarlega og tilkynna til viðkomandi aðila. Starfsstaðir skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar starfa eftir gátlista vegna eineltis sem unninn var í víðtæku samráði fagaðila. 

Röskun á skóla- og frístundastarfi

Tilmæli eru um viðbrögð foreldra / forráðamanna barna í skólum og frístundastarfi. SHS hefur verið falið af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu að fylgjast með veðri og veðurspám og senda út tilkynningar ef á þarf að halda, eftir atvikum í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld.

Aðgerðaáætlun

Í félagmiðstöðvum er unnið markvisst að einum af grunnþáttum íslenskrar menntunar, lýðræði og mannréttindum. Áhersla er lögð á barnaréttindafræðslu fyrir jafnt börn og fullorðna, og að börn séu virkir þátttakendur í lýðræðislegu samfélagi. Eitt af skrefum innleiðingar Barnasáttmálans felst í að vinna aðgerðaráætlun.

Sumaropnanir

Mánudagar: 

16:30 - 19:00 sameiginlegt 

19:30 - 22:30 

 

Miðvikudagar: 

16:30 - 19:00 sameiginlegt 

19:30 - 22:30 

 

Föstudagar: 

16:30 - 19:00 sameiginlegt 

19:30 - 22:30 sameiginlegt

 

Félagsmiðstöðvarnar sameinast stundum um opnanir á sumrin og því mikilvægt að fylgjast vel með staðsetningu opnanna á samfélagsmiðlum. Upplýsingar um staðsetningu sumarstarfs fyrir 10-12 ára börn kemur fram í auglýsingum og tölvupóstum til foreldra.

Teikning af tveim börnum á grunnskólaaldri.

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í félagsmiðstöðinni Gleðibankanum má finna á heimasíðu Hlíðaskóla.