Fjósið

Frístundaheimili

Sæmundarskóli við Gvendargeisla 168
113 Reykjavík

Hvít, lágreist hús sem standa í röðum. Stétt fremst á mynd og ljósastaurar.

Um Fjósið

Opið alla virka daga frá klukkan 13:40 til 17:00

Frístundaheimilið er starfrækt fyrir börn í 1. – 4. bekk í Sæmundarskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Brúnni. Leitast er eftir því að hafa starfið sem fjölbreyttast og skapa börnunum heimilislegt og öruggt umhverfi.

Forstöðumaður er Karen Rún Helgadóttir

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Fjósinu frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Fjósið er lokað í vetrarleyfi skólans.

Dagleg starfsemi

Í Fjósinu er starfræktur kvikmyndaklúbburinn Paddi sem hefur meðal annars staðið fyrir stuttmyndagerð hjá 3. – 4. bekk, þar sem að börnin koma sjálf að hugmyndavinnu, handritagerð, búningavali/gerð og leikstjórn. Starfsfólk aðstoðar með upptöku og eftir vinnslu. Þegar verkin eru tilbúin hafa hóparnir boðið öðrum börnum frístundaheimilisins á sýningu við góðar undirtektir. Einnig má nefna  þróunarverkefnið 'Upp um alla veggi' þar sem útbúin var klifurveggur í Fjósinu. Klifurveggurinn er aðalega notaður í klúbbastarf þar sem útfærðar eru mismunandi klifurleiðir ásamt þrautabraut og hindrunum þegar niður er komið.

Hagnýtar upplýsingar

Frístundadagatal

Í frístundadagatali Fjóssins má finna hvenær eru heilir dagar, hvenær er lokað og ýmislegt fleira sem mikilvægt er að kynna sér. 

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Fjósinu má finna á heimasíðu Sæmundarskóla

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​