Fjörgyn

Félagsmiðstöð fyrir 10–16 ára

Foldaskóli við Logafold 1
112 Reykjavík

Framhlið Foldaskóla í Grafarvogi

Um Fjörgyn

Félagsmiðstöðin Fjörgyn er ein af níu félagsmiðstöðvum í Árbæ, Norðlinga– og Grafarholti, Úlfarsárdal og Grafarvogi sem starfrækt er af Brúnni, frístundamiðstöð. Markhópurinn er börn og unglingar í 5.-10.bekk í Foldaskóla.

Undanfarin ár hefur Fjörgyn boðið upp á D&D klúbb og rafíþróttaklúbba sem hafa verið vinsælir. Búið er að gera upp flott rafíþróttaver sem við erum mjög stolt af. Einnig  er flott stúdíó í félagsmiðstöðinni sem hefur verið vinsælt ásamt klúbbum í tengslum við það.

Forstöðumaður er Þórunn Bríet Þrastardóttir

Opnunartímar

1012 ára

  • Mánudagar: 16:00–17:30
  • Þriðjudagar: 17:00–19:00
  • Miðvikudagar: 17:00–18:30
  • Föstudagar:17:00–18:30

 

1316 ára

  • Mánudagar: 19:30–22:00
  • Þriðjudagar: 13:00–16:00
  • Miðvikudagar: 19:30–22:00
  • Fimmtudagar: 13:00–16:00
  • Föstudagar: 19:30–22:30

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í félagsmiðstöðinni Fjörgyn má finna á heimasíðu Foldaskóla.

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​