Fjörgyn
Félagsmiðstöð fyrir 10–16 ára
Foldaskóli við Logafold 1
112 Reykjavík
Um Fjörgyn
Félagsmiðstöðin Fjörgyn er ein af níu félagsmiðstöðvum í Árbæ, Norðlinga– og Grafarholti, Úlfarsárdal og Grafarvogi sem starfrækt er af Brúnni, frístundamiðstöð. Markhópurinn er börn og unglingar í 5.-10.bekk í Foldaskóla.
Undanfarin ár hefur Fjörgyn boðið upp á D&D klúbb og rafíþróttaklúbba sem hafa verið vinsælir. Búið er að gera upp flott rafíþróttaver sem við erum mjög stolt af. Einnig er flott stúdíó í félagsmiðstöðinni sem hefur verið vinsælt ásamt klúbbum í tengslum við það.
Forstöðumaður er Þórunn Bríet Þrastardóttir
Aðstoðarforstöðumaður er Haukur Örn Halldórsson
Opnunartímar
10–12 ára
- Mánudagar: 16:00–17:30
- Þriðjudagar: 17:00–19:00
- Miðvikudagar: 17:00–18:30
- Föstudagar:17:00–18:30
13–16 ára
- Mánudagar: 19:30–22:00
- Þriðjudagar: 13:00–16:00
- Miðvikudagar: 19:30–22:00
- Fimmtudagar: 13:00–16:00
- Föstudagar: 19:30–22:30
Myndir frá Fjörgyn
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í félagsmiðstöðinni Fjörgyn má finna á heimasíðu Foldaskóla.
Hvað viltu skoða næst?
- Félagsmiðstöðvar Frístundastarf fyrir 10-16 ára börn
- Foreldrasamstarf í skóla- og frístundastarfi Þátttaka foreldra skiptir miklu máli
- Fjölmenning í skóla- og frístundastarfi Öll börn eiga að fá jöfn tækifæri til að vera stolt af uppruna sínum og menningu
- Sumarnámskeið Sumarið er tíminn
- Frístundastarf fatlaðs fólks Fjölbreytt frístundastarf er rekið á vegum borgarinnar fyrir fatlað fólk; börn, unglinga og fullorðna
- Frístundastyrkur - Frístundakortið Frístundakortið er styrkjakerfi í frístundastarfi fyrir 6–18 ára börn og unglinga með lögheimili í Reykjavík