Bjartahlíð

Leikskóli með ungbarnadeild

Grænahlíð 24 / Stakkahlíð 19
105 Reykjavík

Leikskólinn Bjartahlíð séð frá grasbala á útisvæði

Um leikskólann

Opnunartími Björtuhlíðar er frá 07:30 til 16:30.

Leikskólinn Bjartahlíð varð til við sameiningu tveggja leikskóla; Hamraborgar og Sólbakka. Í sameinuðum leikskóla, Björtuhlíð, dvelja 116 börn á 6 deildum. Deildirnar Holt og Hlíð eru fyrir börn á aldrinum 12 mánaða til 3 ára. Furuhlíð (3 ára), Birkihlíð (4 ára), Reynihlíð (4-5 ára) og Grenihlíð (5-6 ára). Starfsmenn eru 30 talsins.

Leikskólastjóri er Rakel Ólafsdóttir

 

Viltu vita meira?

Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. 

Hugmyndafræði

Gleði, samvinna og jákvæðni eru leiðarljós Björtuhlíðar

 

Í Björtuhlíð er lögð áhersla á að skapa lýðræðislegt og hvetjandi samfélag og nýttar eru fjölbreyttar leiðir til að efla alhliða þroska barnsins í leik og starfi. Helst er horft til hugmyndafræði Reggio Emilia í faglegu starfi leikskólans. Að auki hefur vísindaleikurinn, sem er ákveðin tegund náms í gegnum leik, haft mikil áhrif á leikskólastarfið. 

Teikning af konu að kasta hlutum eins og sirkúslistamaður.

Leikskólastarf

Leikskóladagatal

Hvenær eru starfsdagar í Björtuhlíð? Í skóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira.

Leikskóladagatal 2024-2025

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Björtuhlíð? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira. 

Skólanámskrá

Skólanámskrá Björtuhlíðar er í vinnslu

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Björtuhlíðar? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi. 

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar. 

 

Miðstöð Björtuhlíðar

Leikskólinn Bjartahlíð tilheyrir Vesturmiðstöð. Vesturmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta.   

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. 

Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. 

Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Björtuhlíðar er: Jóhanna Ögmundsdóttir