Ævintýraborg við Nauthólsveg

Leikskóli með ungbarnadeild

Nauthólsvegur 81
102 Reykjavík

Ævintýraborg við Nauthólsveg

Um leikskólann

Opnunartími leikskólans er frá 7:45 til 16:30.

Ævintýraborg við Nauthólsveg 81 er sex deilda leikskóli þar sem um 100 börn munu dvelja í leik og starfi. Staðsetning skólans gerir það að verkum að leikskólastarfið mun byggja á útileikjum og útinámi og lögð er áhersla á að Öskjuhlíðin verði vettvangur fyrir rannsóknir og útikennslu. Starfsemi hófst í september 2022. Leikskólar Reykjavíkurborgar vinna eftir aðalnámsskrá leikskóla með Menntastefnu Reykjavíkurborgar til hliðsjónar. Þar er lögð áhersla á að hvetja barnið til uppgötvunar og leiks og gera það að virkum þátttakanda í lýðræðissamfélagi.

Leikskólastjóri er Anna Metta Norðdahl

Hugmyndafræði

Í Ævintýraborg við Nauthólsveg er lögð áhersla á staðtengt nám sem byggir á reynslu barnanna sjálfra í nærumhverfi þeirra.

 

Leikskólinn er einstaklega vel staðsettur við rætur Öskjuhlíðar og skógurinn er mikið nýttur til leiks, rannsókna og sköpunar í leikskólastarfinu. Mikilvægt er að börn fái að njóta ríkulegrar útiveru og tækifæra til að hreyfa sig frjáls, þannig læra þau mest um sig sjálf og heiminn í kringum sig.

 

Börnin fara í ferðir, gangandi og með strætó, þar sem þau kynnast bæði náttúrunni í borginni og borgarmenningunni. Lagt er upp með að börnin fái að prófa sig áfram og nota öll skilningarvit til að kanna umhverfi sitt.

 

Markmiðið er að virkja eðlislæga forvitni barna og frumlega hugsun og að börnin fái að nýta hæfileika sína til fulls svo þau geti orðið skapandi, gagnrýnir og sjálfstæðir einstaklingar í nútíma samfélagi.

Teikning af konu að kasta hlutum eins og sirkúslistamaður.

Miðstöð Ævintýraborgar við Nauthólsveg

Ævintýraborg við Nauthólsveg tilheyrir Vesturmiðstöð. Vesturmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta.

 

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi.

 

Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar. 

Bækur í hillu á leikskólanum Ævintýraborg við Nauthólsveg

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. 

Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. 

Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Ævintýraborgar við Nauthólsveg er: Linda Ósk Sigurðardóttir