Skrekkur

Teikning af hljómsveit á sviði.

Skrekkur er árleg hæfileikakeppni fyrir grunnskólanemendur í Reykjavík. Grunnskólar með unglingadeild geta sent eitt atriði í keppnina. Fyrirkomulag keppninnar er að allt að 24 skólar keppa á þremur undanúrslitakvöldum í Borgarleikhúsi og keppnin nær hámarki fjórða kvöldið þegar keppt er til úrslita. 

Hvenær er Skrekkur?

Skrekkur mun fara fram í Borgarleikhúsinu dagana 4., 5. og 6. nóvember 2024 og úrslit verða 11. nóvember. Undanúrslit eru í vefútsendingu á RÚV en lokakvöldinu verður sjónvarpað beint í línulegri dagskrá á RÚV eins og venjan hefur verið síðustu ár. 

 

Harpa Þorvaldsdóttir er verkefnastjóri með Skrekk og veitir allar upplýsingar.

Krakkar spila pógó

Fylgstu með Skrekk

Skrekkur er með fésbókarsíðu þar sem birtast fréttir úr keppninni, frá undanúrslitakvöldum og sjálfu úrslitakvöldinu. 

Sigurvegar Skrekks frá upphafi

  • 2023 Hagaskóli
  • 2022 Réttarholtsskóli
  • 2021 Árbæjarskóli
  • 2020 Langholtsskóli
  • 2019 Hlíðaskóli
  • 2018 Árbæjarskóli
  • 2017 Árbæjarskóli
  • 2016 Hagaskóli
  • 2015 Hagaskóli
  • 2014 Seljaskóli
  • 2013 Langholtsskóli
  • 2012 Austurbæjarskóli
  • 2011 Háteigsskóli
  • 2010 Seljaskóli
  • 2009 Laugalækjarskóli
  • 2008 Austurbæjarskóli
  • 2007 Hlíðaskóli
  • 2006 Langholtsskóli
  • 2005 Austurbæjarskóli
  • 2004 Laugalækjarskóli
  • 2003 Laugalækjarskóli
  • 2002 Hagaskóli
  • 2001 Hagaskóli
  • 2000 Hlíðaskóli
  • 1999 Hagaskóli
  • 1998 Hvassaleitisskóli
  • 1997 Hagaskóli
  • 1996 Hvassaleitisskóli
  • 1995 Hagaskóli
  • 1994 Vogaskóli
  • 1993 Hagaskóli
  • 1992 Breiðholtsskóli
  • 1991 Árbæjarskóli
  • 1990 Breiðholtsskóli

Verðlaunagripurinn

Höfundur verðlaunagrips Skrekks er Sigrún Gunnarsdóttir, leirlistakona.

 

Hafa samband

Sendið inn fyrirspurnir á skrekkur@reykjavik.is

Harpa Þorvaldsdóttir er verkefnastjóri með Skrekk og veitir allar upplýsingar.