Langholtsskóli fór með Skrekkinn heim

Skóli og frístund

""

Atriði Langholtsskóla Boðorðin 10 þótti best á hæfileikahátíð grunnskólanna í gærkvöldi, en sjónvarpað var beint frá úrslitakeppninni í Borgarleikhúsinu. 

Boðorðin 10 fjallar um þær óskrifuðu reglur sem unglingarnir þurfa að fylgja. Unglingum finnst þessar reglur oft segja til um það hvernig á að vera og því fylgir oft mikill félagslegur þrýstingur. Í dansi, söng og leik tjáðu nemendur Langholtsskóla hvernig þeir vilja breyta reglunum, ekki bara fyrir sig heldur alla unglinga. Sjá siguratriði Langholtsskóla Borðorðin 10