Vinaheimar
Frístundaheimili
Ölduselsskóli við Öldusel
109 Reykjavík
Um Vinaheima
Vinaheimar er frístundaheimili fyrir börn úr 1.-2. bekk í Ölduselsskóla og er rekið af frístundamiðstöðinni Miðbergi. Frístundaheimilið er starfrækt innan veggja skólans og hefur aðgang að íþróttasal og kennslustofum skólans.
Forstöðumaður er Viktor Orri Þorsteinsson, s: 695-5036
Aðstoðarmaður forstöðumanns er Arnar Bragi Magnússon, s: 665-4866
Lengd viðvera
Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Vinaheimum frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Vinaheimar eru lokaðir í vetrarleyfi skólans.
Hagnýtar upplýsingar
Gjaldskrá
Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira.
Myndir frá Vinaheimum
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Vinaheimum má finna á heimasíðu Ölduselsskóla