Vígyn

Félagsmiðstöð fyrir 10–16 ára

Víkurskóli, Hamravík 10
112 Reykjavík

""

Um Vígyn

Félagsmiðstöðin Vígyn er ein af níu félagsmiðstöðvum í Árbæ, Norðlinga– og Grafarholti, Úlfarsárdal og Grafarvogi sem starfrækt er af Brúnni, frístundamiðstöð. Markhópurinn er börn og unglingar í 5.-10.bekk í Víkurskóla, Engjaskóla og Borgaskóli.

Forstöðumaður er Stefán Örn Kárason

Aðstoðarforstöðukona er Kristín Lilja Valgarðsdóttir

Opnunartímar

10 -12 ára

Mánudagar: 16:45-18:00

Miðvikudagar: 16:45-18:30

Föstudagar: 16:45-18:30

 

13 - 16 ára

Mánudagar: 19:30-21:45

Miðvikudagar: 19:30-21:45

Föstudagar: 19:30-21:45

Teikning af fjórum unglingum.

Sumaropnanir

Mánudagar: 19:30 - 22:30

Miðvikudagar: 19:30 - 22:30

Föstudagar: 19:30 - 22:30 - sameiginlegt

 

Félagsmiðstöðvarnar sameinast stundum um opnanir á sumrin og því mikilvægt að fylgjast vel með staðsetningu opnanna á samfélagsmiðlum. Upplýsingar um staðsetningu sumarstarfs fyrir 10-12 ára börn kemur fram í auglýsingum og tölvupóstum til foreldra.

Teikning af tveim börnum á grunnskólaaldri.

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í félagsmiðstöðinni Vígyn má finna á heimasíðu Víkurskóla.