Víkurskóli

Grunnskóli, 8.-10. bekkur

Hamravík 10
112 Reykjavík

""

Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?

Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.

Skóladagatal Víkurskóla

Hér finnur þú skóladagatal Víkurskóla. Í skóladagatali eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir foreldra og forráðamenn.

Teikning af litríkum skólatöskum.

Matur í grunnskólum

Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar veturinn 2024-2025 en mikilvægt er fyrir skólann að hafa áfram yfirsýn, halda utan um upplýsingar um ofnæmi og óþol og takmarka matarsóun. Því þarf eins og áður að skrá nemendur í mataráskrift.

Þeir nemendur sem voru skráðir í fyrra verða sjálfkrafa skráðir í áskrift en aðrir þurfa að skrá sig. Breyting á skráningu fer fram á matur.vala.is.

Teikning af Fjólu að borða mat í skólanum

Um Víkurskóla

Víkurskóli hóf starfsemi sína 1. ágúst 2020 og er nýr grunnskóli í norðanverðum Grafarvogi.
Víkurskóli er fyrir nemendur í 8.-10. bekk sem hafa sótt skóla í Borga- og Engjaskóla. Víkurskóli er með sérstaka áherslu á nýsköpun.
Nemendafjöldi skólaárið 2023-2024 er áætlaður rúmlega 240. Félagsmiðstöðin Vígyn er starfrækt í Víkurskóla.
Skólaárið 2023-2024 verður áfram unnið að stefnumótun skólans með starfsfólki, nemendum og foreldrum.

Skólastjórnendur

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Víkurskóla er: Ingibjörg Gunnlaugsdóttir

 

Skólastarfsemi

Kennsluhættir

Hvernig er kennsluháttum hagað í Víkurskóla? Hér getur þú fengið nánari upplýsingar um samþættingu námsgreina, lotur og ýmislegt fleira. 

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Víkurskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira. 

Skólaráð

Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans.

Skólaráð 2023-2024

Fulltrúar kennara

Almennir starfsmenn

Fulltrúar nemenda

Fulltrúar foreldra

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag  er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar. Hlutverk foreldrafélags er að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla. Foreldrafélag hvers skóla setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð.

 

Foreldrafélag Víkurskóla

  • Gunnhildur Blöndal
  • Ragnheiður Inga Davíðsdóttir
  • Halla Magneudóttir
  • Ólöf Snædís Ólafsdóttir
  • Guðrún Helga Sigfúsdóttir

 

Skólahverfi Víkurskóla

Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Víkurskóla.

Teikning af tveim húsum.

Viltu vita meira um Víkurskóla? 

 Í þessu stutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi skólans.