Eldra fólk

Eldra fólk er fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir. Sum í hópnum þurfa aðstoð við grunnathafnir daglegs lífs á meðan önnur þurfa litla eða enga þjónustu frá degi til dags. Markmiðið er að fólk geti búið á eigin heimili eins lengi og það kýs í gegnum margvíslegan stuðning sem gerir því kleift að lifa innihaldsríku lífi og taka virkan þátt í samfélaginu.

Ráðgjöf fyrir eldra fólk og aðstandendur þeirra

Eldra fólk er fjölbreyttur hópur með margvíslegar þarfir. Ráðgjöf fyrir eldra fólk felur í sér leiðsögn fyrir einstaklinga og aðstandendur þeirra. Markmið ráðgjafarinnar er að aðstoð fólk að þekkja þá þjónustu sem er í boði og styðja það við að lifa sjálfstæðu og virku lífi.

Heimaþjónusta

Í Reykjavík er heimastuðningur og heimahjúkrun samþætt heimaþjónusta sem hefur það að markmiði að veita persónumiðaða þjónustu og gera fólki kleift að búa heima eins lengi og það óskar, þrátt fyrir veikindi eða færniskerðingu. 

Heimsendur matur

Það er mikilvægt fyrir allt fólk að geta fengið sér staðgóða og næringarríka máltíð á hverjum degi. Fólk sem getur ekki eldað sjálft getur fengið mat sendan heim að dyrum. Hann er framleiddur í framleiðslueldhúsi velferðarsviðs á Vitatorgi. 

Félagsstarf

Virk þátttaka í félagsstarfi lífgar upp á daginn og spornar gegn félagslegri einangrun. Í Reykjavík eru fjölmargar félagsmiðstöðvar sem bjóða upp á fjölbreytt, skemmtilegt og gefandi starf fyrir fullorðið fólk.