Ráðgjöf fyrir eldra fólk og aðstandendur þeirra

Eldra fólk er fjölbreyttur hópur með margvíslegar þarfir. Ráðgjöf fyrir eldra fólk felur í sér leiðsögn fyrir einstaklinga og aðstandendur þeirra. Markmið ráðgjafarinnar er að aðstoð fólk að þekkja þá þjónustu sem er í boði og styðja það við að lifa sjálfstæðu og virku lífi.

Hvernig sæki ég um ráðgjöf?

Þú getur bókað viðtal við ráðgjafa. Hann hefur samband og veitir ráðgjöf og leiðsögn um málefni eldra fólks. Ef þú ert í þörf fyrir meiri ráðgjöf eða stuðning er þér beint áfram í viðtal hjá ráðgjafa á miðstöð í þínu hverfi. Aðstandendur geta líka bókað viðtal við ráðgjafa.

Á ég rétt á ráðgjöf?

Allt eldra fólk sem á lögheimili í Reykjavík getur fengið fría ráðgjöf. 

Hvernig ráðgjöf er í boði?

Ráðgjöfin tengist t.d. réttindum, virkni, velferðartækni, sjálfstæðri búsetu og umsóknum um þjónustu sem hentar þörfum íbúa. Ráðgjöfin er veitt á miðstöðvum, í gegnum síma, inni á heimilum og utan þeirra.

Hvar fæ ég frekari upplýsingar?

Félagsleg ráðgjöf er veitt á grundvelli eftirfarandi laga: