Dagforeldrar
![](/sites/default/files/hanna_illustrations/born2.png)
Hjá sjálfstætt starfandi dagforeldrum getur þú fengið vistun fyrir barnið þitt frá sex/níu mánaða aldri þar til það byrjar í leikskóla. Niðurgreiðsla af vistunargjaldi ræðst af hjúskapar- og námsstöðu foreldra.
Að sækja um hjá dagforeldri
Dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi en með rekstrarleyfi frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála. Ef þú vilt skrá barnið þitt hjá dagforeldri hefur þú samband við viðkomandi dagforeldri. Hafðu í huga að margir dagforeldrar eru með biðlista eftir plássum, því er gott að hafa samband með góðum fyrirvara.
Niðurgreiðsla
Sérhvert dagforeldri setur fram sína gjaldskrá en þak er á gjaldskrá foreldra barna 18 mánaða og eldri. Reykjavíkurborg niðurgreiðir ákveðna upphæð með hverju barni hjá dagforeldri að uppfylltum skilyrðum reglna um niðurgreiðslur.
![](/sites/default/files/hanna_illustrations/velferd2.png)
Að velja dagforeldri
Það er stórt skref að setja barnið sitt í fyrsta skipti í dagvistun og því mikilvægt að vanda valið og kanna allar aðstæður vel. Dagforeldrar gæta barna frá allt að sex mánaða aldri og vinna mikilvægt umönnunar- og uppeldisstarf.
Daggæsluráðgjafar
Daggæsluráðgjafar starfa í Suðurmiðstöð. Þeir sinna lögbundnu eftirliti með starfsemi dagforeldra, ráðgjöf til dagforeldra, ráðgjöf til foreldra og sjá um að greiða niðurgreiðslur til dagforeldra. Hægt er að hafa samband við daggæsluráðgjafa í netfangið daggaesla.umsjon@reykjavik.is
Ég hef áhuga á að gerast dagforeldri
Aðstæður dagforeldra hafa verið bættar til að hvetja til nýliðunar í hópi dagforeldra í Reykjavík. Stofnstyrkur til dagforeldra var hækkaður, boðið er upp á árlegan aðstöðustyrk og endurmenntun hefur verið bætt. Hækkuð var niðurgreiðsla til barna sem náð hafa 18 mánaða aldri.