Steinahlíð

Leikskóli

Við Suðurlandsbraut
108 Reykjavík

Leikskólinn Steinahlíð með há lauftré í baksýn

Um leikskólann

Opnunartími Steinahlíðar er frá 7:30 til 16:30

Í Steinahlíð hefur verið starfræktur leikskóli frá árinu 1949 og er því einn af elstu leikskólunum í Reykjavík. Húsið var byggt árið 1932 en gefið Barnavinafélaginu Sumargjöf árið 1949. Það voru hjónin Elly Schepler Eiríksson og Halldór Eiríksson sem gáfu húsið og var það ósk þeirra að börnum yrði kennt að meta og rækta tengslin við náttúruna og að ávallt yrði lögð áhersla á trjárækt og matjurtarækt. Útivera og umhverfismennt skipar því stóran sess í starfi Steinahlíðar. Í Steinahlíð dvelja 55 börn samtímis á þrem deildum. Deildirnar heita Laut, Kjarr og Hlíð.

Leikskólastjóri er Bergsteinn Þór Jónsson

 

Viltu vita meira?

Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. 

Hugmyndafræði

Einkunnarorð Steinahlíðar eru Virðing, vellíðan og sköpun

 

Leikurinn er kjarninn í öllu uppeldisstarfi leikskólans hvort sem um er að ræða sjálfsprottinn leik eða skipulagðar stundir. Leikurinn er líf og starf barnsins sem eflir alhliða þroska þess. Í Steinahlíð er áhersla lögð á umhverfismennt og útiveru enda sérstaða Steinahlíðar fyrst og fremst sú að við höfum yfir að ráða stórum og fallegum garði. Í skipulagningu á starfinu er þess vegna gjarnan reynt að tengja náttúru þeim verkefnum sem unnin eru. Steinahlíð er Grænfánaleikskóli. 

Teikning af konu að kasta hlutum eins og sirkúslistamaður.

Leikskólastarf

Skólanámskrá

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Steinahlíðar? Í skólanámskrá Steinahlíðar finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi. 

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Steinahlíð? Í starfsáætlun Steinahlíðar finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira. 

Leikskóladagatal

Hvenær eru starfsdagar í Steinahlíð? Í leikskóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira.

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi.

Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar.

Miðstöð Steinahlíðar

Leikskólinn Steinahlíð tilheyrir Norðurmiðstöð. Norðurmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Laugardal og Háaleiti og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. 

Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. 

Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Steinahlíðar er: Sólveig Indiana Guðmundsdóttir