Regnboginn

Frístundaheimili

Seljaskóli og Ölduselsskóli
Hólmasel 4–6
109 Reykjavík

Hvítt hús með máluðum blómum á, sem hýsir frístundaheimilið Regnbogann.

Um Regnbogann

Opið alla virka daga frá klukkan 13:40 til 17:00

Regnboginn er safnfrístund fyrir börn úr 3.-4. bekk í Seljaskóla og Ölduselsskóla og er rekinn af frístundamiðstöðinni Miðbergi.  

Forstöðumaður er Þorbjörg Jónsdóttir, s: 695-5037

Aðstoðarforstöðumaður er Sigrún Ósk Arnardóttir, s: 695-5089

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Regnboganum frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Regnboginn er lokaður í vetrarleyfi skólans.

Viltu vita meira?

Viltu vita meira um Regnbogann?  Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi frístundaheimilisins.

Dagleg starfsemi

Lagt er áherslu á að bjóða uppá meira krefjandi viðfangsefni en börnin hafa verið að fást við í 1.-2. bekk. Hér má nefna kvikmyndasmiðju þar sem börnin semja, leikstýra og leika í eigin stuttmynd, Breiðholt Got Talent - hæfileikakeppni frístundaheimilanna í Breiðholti og leiklistarklúbb. Við leitumst við að vera heilsueflandi og bjóðum uppá box, klúbb sem heitir hreyfing og hlustun og reglulega tíma í íþróttahúsi.

 

Hagnýtar upplýsingar

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Frístundadagatal

Í frístundadagatali Regnbogans má finna hvenær eru heilir dagar, hvenær er lokað og ýmislegt fleira sem mikilvægt er að kynna sér. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Regnboganum má finna á heimasíðum Seljaskóla og Ölduselsskóla.

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​