Langholt

Leikskóli með ungbarnadeild

Sólheimar 19 og 21
104 Reykjavík

Um leikskólann

Opnunartími Langholts er frá 7:30 til 16:30. 

Langholt er leikskóli sem varð til úr sameiningu tveggja leikskóla. Ákveðið var að aldursskipta húsunum þannig að í Holtaborgarhúsinu eru yngri börnin á gulu-, rauðu- og bláudeild og þau eldri í Sunnuborgarhúsinu á deildunum Smá-, Undra-, Álfa-, Dverga- og Furðulandi.

Leikskólastjóri er Sigrún Bragadóttir

Aðstoðarleikskólastjóri er Selma Hauksdóttir

Viltu vita meira?

Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. 

Leikskólastarf

Leikskóladagatal

Hvenær eru starfsdagar í Langholti? Í skóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira.

Starfsáætlun

Hvað er framundan á Langholti? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira.

Skólanámskrá

Skólanámskrá Langholts er í vinnslu

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Langholts? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi. 

Læsi er allsstaðar

Með læsi er átt við þá hæfni að geta lesið, skilið, túlkað og unnið á gagnrýninn hátt með ritað mál, orð, tölur, myndir og tákn.

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi.

 

Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar.

Stoðþjónusta

Hjá Reykjavíkurborg starfar hópur fagaðila sem sinnir skólaþjónustu við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og velferðarþjónustu auk annarrar sérhæfðrar ráðgjafar og þjónustu sem þarf til að öll börn geti tekið virkan þátt í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar og látið drauma sína rætast.   

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. 

Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. 

Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Langholts er Fanndís Hlín Hlynsdóttir