Klapparholt
Frístundaheimili
Norðlingaskóli við Árvað
110 Reykjavík
Um Klapparholt
Klapparholt er frístundaheimili Norðlingaskóla og er staðsett inni í skólanum. Þar er boðið upp á fjölbreytt frístundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6 - 9 ára nemenda lýkur. Frístundaheimili hafa mikil áhrif á félagsþroska barna og eru vettvangur þar sem þau æfa sig í vináttu og samskiptum. Börnin læra að virða hvert annað og að allir hafi sín sérkenni.
Forstöðumaður er Pétur Finnbogason
Aðstoðarforstöðukona er Lovísa Sólveig Erlingsdóttir
Lengd viðvera
Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Klapparholti frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Klapparholt er lokað í vetrarleyfi skólans.
Hagnýtar upplýsingar
Gjaldskrá
Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira.
Myndir frá Klapparholti
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Klapparholti má finna á heimasíðu Norðlingaskóla.