Hlíð

Leikskóli

Engihlíð 6-8, Eskihlíð 17
105 Reykjavík

""

Um leikskólann

Opnunartími leikskólans Hlíðar er frá 7:30 til 17:00

Framkvæmdir standa yfir á leikskólanum Hlíð og er hann tímabundið staðsettur í Safamýri 5. Endanleg tímaáætlun framkvæmda liggur ekki fyrir. 

 

 

Leikskólinn Hlíð

Viltu vita meira um Hlíð? Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. Unnið af Erlu Stefánsdóttur og Antoníu Lárusdóttur fyrir skóla- og frístundasvið. 

Miðstöð Hlíðar

Leikskólinn Hlíð tilheyrir Vesturmiðstöð. Vesturmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta. 

 

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar.

Skýli með marglitum glerrúðum á útisvæði leikskólans Hlíðar

Myndir frá Hlíð