Skráning á námskeiðið Styrkur
STYRKUR - 6 vikna námskeið fyrir 16-20 ára á vegum Hins Hússins
STYRKUR er 6 vikna námskeið fyrir 16-20 ára ungmenni þar sem áhersla er lögð á líkamsrækt, sjálfsstyrkingu og markmiðasetningu.
Hópurinn hittist á þriðjudögum kl. 17–19 í Hinu Húsinu. Við leggjum áherslu á að skapa styðjandi, jákvætt og skemmtilegt andrúmsloft. Við förum í hópefli, ýmiss konar æfingar og leiki og borðum saman kvöldmat.
Á fimmtudögum kl. 18-19 æfir hópurinn í líkamsræktarstöðinni Katla Fitness í Urðarhvarfi undir handleiðslu Siggu Fanndal, reynds einkaþjálfara og íþróttafræðings.
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu og hefst þriðjudaginn 20. október.
Skráning fer fram hér að neðan. Jóna og Margrét, leiðbeinendur námskeiðsins, munu hafa samband við þátttakendur og veita frekari upplýsingar. Einnig er hægt að hafa samband í gegnum netfangið jafningi@reykjavik.is og í síma 411-5519/411-1695.
Námskeiðið er styrkt af Lýðheilsusjóði Landlæknis.