Fókus
Félagsmiðstöð fyrir 10–16 ára
Ingunnarskóli, Maríubaug 1
113 Reykjavík
Um Fókus
Félagsmiðstöðin Fókus er opin börnum og unglingum í 5.-10.bekk í Ingunnarskóla.
Fókus er regnbogavottuð félagsmiðstöð og fagnar fjölbreytileikanum.
Félagsmiðstöðin er staðsett inni í tónlistarstofu Ingunnarskóla og samnýtir jafnframt aðstöðu skólans, eins og íþróttasal og heimilisfræðistofu.Í félagsmiðstöðinni er hlaðvarps og stúdíó aðstaða og boðið er upp á ýmsa klúbba og smiðjur. Starfandi er Fókusráð sem samanstendur af unglingum úr 8., 9. og 10.bekk. Þau eru rödd bekkjarfélaga sinna og skipuleggja dagskrá félagsmiðstöðvarinnar og stærri viðburði eins og félagsmiðstöðvardaginn og böll. Farið er í ferðir með unglingunum og er skíðaferðin sú stærsta. Að auki er boðið upp á gistinótt fyrir 10.bekk en þá fá þau að gista í félagsmiðstöðinni og er það alltaf jafn spennandi.
Forstöðukona er Berglind Ragnarsdóttir
Aðstoðarforstöðukona er Valentína Tinganelli
Opnunartímar
10-12 ára
Þriðjudaga kl 14:00-15:30
Miðvikudaga kl 14:00-15:30
Fimmtudaga kl: 14:00-15:30
8.-10. bekkur:
Mánudagar 13:30 -17:30
Mánudags- og miðvikudagskvöld: 19:30-22:00.
Föstudagskvöld: 19:30-22:30.
Hagnýtar upplýsingar
Einelti í skóla- og frístundastarfi
Einelti og ofbeldi getur haft varanleg áhrif á sálarlíf barna og unglinga. Það á ekki að viðgangast í skóla- og frístundastarfi. Allir starfsstaðir barna og unglinga eru með áætlun gegn einelti. Foreldrar sem fá vísbendingar eða upplýsingar um einelti ættu að taka það alvarlega og tilkynna til viðkomandi aðila. Starfsstaðir skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar starfa eftir gátlista vegna eineltis sem unninn var í víðtæku samráði fagaðila.
Röskun á skóla- og frístundastarfi
Tilmæli eru um viðbrögð foreldra / forráðamanna barna í skólum og frístundastarfi. SHS hefur verið falið af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu að fylgjast með veðri og veðurspám og senda út tilkynningar ef á þarf að halda, eftir atvikum í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld.
Sumaropnanir
Mánudagar: 19:30 - 22:30
Miðvikudagar: 19:30 - 22:30
Föstudagar: 19:30 - 22:30 - sameiginlegt
Félagsmiðstöðvarnar sameinast stundum um opnanir á sumrin og því mikilvægt að fylgjast vel með staðsetningu opnanna á samfélagsmiðlum eða Abler. Upplýsingar um staðsetningu sumarstarfs fyrir 10-12 ára börn kemur fram í auglýsingum og tölvupóstum til foreldra og hægt er að skrá þau í smiðjur á Abler.
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í félagsmiðstöðinni Fókus má finna á heimasíðu Ingunnarskóla.
Hvað viltu skoða næst?
- Félagsmiðstöðvar Frístundastarf fyrir 10-16 ára börn
- Foreldrasamstarf í skóla- og frístundastarfi Þátttaka foreldra skiptir miklu máli
- Fjölmenning í skóla- og frístundastarfi Öll börn eiga að fá jöfn tækifæri til að vera stolt af uppruna sínum og menningu
- Sumarnámskeið Sumarið er tíminn
- Frístundastarf fatlaðs fólks Fjölbreytt frístundastarf er rekið á vegum borgarinnar fyrir fatlað fólk; börn, unglinga og fullorðna
- Frístundastyrkur - Frístundakortið Frístundakortið er styrkjakerfi í frístundastarfi fyrir 6–18 ára börn og unglinga með lögheimili í Reykjavík