Menning og samfélag

Teikning af tveimur krökkum sem sitja á gólfi og lesa.

Flóttafólk sem fær greidda fjárhagsaðstoð getur fengið ókeypis sund- og menningarkort.

Sundkort

Útivera og hreyfing stuðla að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu. Sundlaugar Reykjavíkur sameina allt þetta þrennt. Flóttafólk getur fengið sundkort sér að kostnaðarlausu sem veitir frían aðgang að almenningssundlaugum Reykjavíkur í sex mánuði frá útgáfudegi. 

Menningarkort

Menningarkort Reykjavíkur er árskort sem veitir frían aðgang að Listasafni Reykjavíkur (Hafnarhús, Kjarvalsstaðir og Ásmundarsafn) og Borgarsögusafni Reykjavíkur (Árbæjarsafn, Landnámssýningu og Sjóminjasafn). Kortið gildir á allar sýningar og viðburði á vegum safnanna. Þeir sem hafa menningarkort fá líka bókasafnskort í Borgarbókasafn Reykjavíkur. Kortið veitir einnig afslátt á önnur söfn, til dæmis 50% afslátt á Listasafn Íslands. Flóttafólk getur fengið ókeypis kort. 

Íslenskunámskeið

Þú átt rétt á íslenskunámskeiðum hjá Vinnumálastofnun þér að kostnaðarlausu. Til að komast á námskeið þarf tilvísun frá Reykjavíkurborg sem ráðgjafi á miðstöð í þínu hverfi sendir til Vinnumálastofnunar. 

Samfélagsfræðsla

Vefurinn Landneminn á vegum Vinnumálastofnunar hýsir kennsluefni í samfélagsfræðum fyrir fullorðna innflytjendur á íslandi, og hefur verið þýddur á átta tungumál. Þar má öðlast þekkingu á mikilvægum sögulegum, félagslegum, efnahagslegum, menningarlegum, lagalegum og pólitískum aðstæðum á Íslandi auk upplýsinga um helstu réttindi og skyldur í íslensku samfélagi. Kennsluefnið á vefnum er rafrænt, en hægt er að skrá sig á staðbundin námskeið.