Húsnæði

Teikning af blokk og leiktækjum á lóðinni.

Flóttafólk getur fengið leiðbeiningar um helstu leiðir til að finna húsnæði á almennum leigumarkaði hjá Vinnumálastofnun og starfsfólki miðstöðva. Þar eru líka veittar upplýsingar um rétt til húsnæðisbóta til að niðurgreiða leigu.

Ábyrgðaryfirlýsing

Leigjendur sem fá greidda fjárhagsaðstoð geta sótt um ábyrgðaryfirlýsingu frá Reykjavíkurborg. Þannig ábyrgist Reykjavíkurborg greiðslu tryggingar til leigusala standi leigutaki ekki við samningsskyldur sínar samkvæmt þinglýstum húsaleigusamningi, eða samningi sem er skráður í húsnæðisgrunn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þú getur sótt um ábyrgðaryfirlýsingu á miðstöð í þínu hverfi.

Styrkur til húsbúnaðarkaupa

Flóttafólk sem fær greidda fjárhagsaðstoð í Reykjavík getur átt rétt á styrk til að kaupa nauðsynlegan húsbúnað og raftæki til heimilisnota. Styrkurinn er fyrir þá sem eru eignalausir og eru að stofna heimili. Hann er bara veittur einu sinni.

Áttu rétt á húsnæðisbótum?

Húsnæðisbætur ríkisins eru mánaðarlegar greiðslur sem eru ætlaðar til að aðstoða þá sem leigja íbúðarhúsnæði. Sótt er um þær hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofun (HMS). Umsækjandi og annað heimilisfólk þarf að uppfylla ákveðin skilyrði til að eiga rétt á greiðslum húsnæðisbóta. Þú getur kannað rétt þinn með reiknivél fyrir húsnæðisbætur.

Teikning af tveim húsum.

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Sérstakur húsnæðisstuðningur er fjárhagsleg aðstoð Reykjavíkurborgar við fjölskyldur og einstaklinga vegna greiðslu á húsaleigu. Aðeins þau sem eiga rétt á húsnæðisbótum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar geta átt rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi.  Þú getur kíkt á reiknivél sérstaks húsnæðisstuðnings til að sjá hvað þú átt rétt á hárri upphæð, en athugaðu að til að eiga rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi þarf að uppfylla ákveðin skilyrði.