Hitt húsið
Miðstöð ungs fólks
Sumarliðasjóður
Sumarliðasjóður Reykjavíkurborgar veitir stuðning til íþrótta- og æskulýðsfélaga í borginni.
Íþrótta- og æskulýðsfélög í Reykjavík geta sótt um styrk til þess að greiða laun starfsfólks, á aldrinum 17-25 ára, sem starfar á sumarnámskeiðum í Sumarliðasjóð Reykjavíkurborgar.
Verkefnið samræmist forvarnarstefnu Reykjavíkurborgar vegna málefna barna og unglinga og foreldra þeirra, stefnu í íþróttamálum Reykjavíkur til 2030 og stefnumótun í málefnum ungs fólks 16 ára og eldri.
Markmið sjóðsins eru:
- Að fjölga sumarstörfum fyrir ungt fólk á aldrinum 17-25 ára í Reykjavík
- Að styðja við framkvæmd frístundanámskeiða fyrir börn yfir sumartímann á aldrinum 6-12 ára
Hverjir geta sótt um?
Íþrótta- og æskulýðsfélög sem hafa aðsetur í Reykjavík. Félögin þurfa að bjóða upp á námskeið fyrir börn á aldrinum 6-12 ára á dagvinnutíma þegar grunnskólar eru lokaðir vegna sumarleyfa.
Hitt Húsið veitir styrktarumsóknum viðtöku og annast samskipti við umsækjendur fyrir hönd Reykjavíkurborgar.
Athugið að umsóknarfrestur er frá 6. janúar til og með 30. janúar 2026.
Umsókn um styrk úr Sumarliðasjóði
Athugið að umsóknarfrestur til að sækja um styrk úr Sumarliðasjóði Reykjavíkurborgar er frá 6. janúar til og með 30. janúar 2026