English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Frístundamiðstöð
Álfabakka 10,
Suðurmiðstöð
109 Reykjavík
Frístundamiðstöðin Miðberg stendur fyrir fjölbreyttu starfi fyrir börn og ungmenni frá aldrinum 6 – 16 ára. Miðstöðin er byggð á grunni Fellahellis og hefur hún þjónað Breiðholtsbúum frá árinu 1974. Mikið er lagt upp úr því að bjóða upp á fjölbreytt og áhugavert frístundastarf undir handleiðslu hæfra starfsmanna. Frá Miðbergi er stutt í náttúruperluna Elliðaárdalinn og Breiðholtslaugin er hinum megin við götuna.
Miðberg heldur utanum starfsemi frístundaheimila og félagsmiðstöðva í Breiðholti. Markmiðið er að veita börnum og ungmennum innihaldsríka þjónustu í frítíma þeirra. Lögð er sérstök áhersla á forvarnarstarf, að stuðlað sé að jákvæðum félagsþroska, að starfsemin standi öllum til boða og að fyrirliggjandi séu upplýsingar um íþrótta- og tómstundartilboð í hverfinu.
Framkvæmdastjóri: Helgi Eiríksson, s: 695-5030
Deildarstjóri unglingastarfs: Kristrún Lilja Daðadóttir, s: 695-5033
Deildarstjóri barnastarfs: Herdís Snorradóttir, s: 695-5032
Fjármálastjóri: Óttar Möller, s: 412-5752
Ráðgjafarþroskaþjálfi: Sigrún Stella Þrastardóttir, í fæðingarorlofi
Verkefnastjóri forvarna: Kári Sigurðsson