Gjaldskylda

Það kostar ekki alltaf það sama að leggja bílnum. Í Reykjavík eru fjögur mismunandi gjaldsvæði og verðlagning og gjaldskyldutími mismunandi. Svæðin eru P1, P2, P3 og P4. Hægt er að greiða í stöðumæla eða skrá bifreið í greiðsluapp að eigin vali til að greiða fyrir stæðið.
Visthæfar skífur féllu úr gildi þann 1.1.2023
Hvað kostar að leggja bílnum?
P1
- 630 krónur á klukkustund.
- 9–21 virka daga og 10–21 laugardaga og sunnudaga
- Hámarkstími er 3 klst.
P2
- 230 krónur á klukkustund.
- 9–21 virka daga og 10–21 laugardaga og sunnudaga
P3
- 230 krónur á klukkustund fyrstu tvær klukkustundirnar. Eftir það 70 krónur.
- 9–18 virka daga
P4
- 230 krónur á klukkustund.
- 8–16 virka daga.
Er gjaldskylda á lögbundnum frídögum?
Ekki er gjaldskylda á eftirfarandi dögum:
Gjaldsvæðin í borginni
Eftirfarandi reglur gilda um gjaldsvæðin í borginni:
- Miðar keyptir á gjaldsvæði 1 gilda á öllum gjaldsvæðum
- Miðar keyptir á gjaldsvæði 2 gilda á gjaldsvæðum 2,3 og 4
- Miðar keyptir á gjaldsvæði 3 gilda einungis á gjaldsvæði 3
- Miðar keyptir á gjaldsvæði 4 gilda einungis á gjaldsvæði 4
- Íbúakort gildir ekki á gjaldsvæðum eitt (rautt) og fjögur (appelsínugult).
Skýringar á litamerkingum á korti:
- Rautt - Gjaldsvæði 1
- Ljósrautt - Gjaldsvæði 1 (íbúakort gilda)
- Blátt - Gjaldsvæði 2
- Grænt - Gjaldsvæði 3
- Appelsínugult - Gjaldsvæði 4
Greiðsluleiðir
Þú getur bæði borgað í stöðumælum með mynt, korti og símum og með rafrænum greiðsluleiðum (öppum). Í nokkrum stöðumælum er ekki hægt að greiða með mynt en þá vísað á næsta stöðumæli á sama gjaldsvæði.

Bílastæði fyrir hreyfihamlað fólk
Fólk með skerta hreyfigetu sem á erfitt með að komast til og frá almennum bílastæðum getur átt rétt á stæðiskorti. Með stæðiskorti er hægt að leggja í sérmerkt stæði fyrir hreyfihamlaða og leggja án endurgjalds í gjaldskyld útistæði, auk þess sem það gefur heimild til að leggja án endurgjalds í bílahús á vegum Reykjavíkurborgar.
