Bílastæðasjóður

Frístundir

Hér finnurðu allt um gjaldskyld stæði og bílahús á vegum Reykjavíkurborgar. Hér er hægt er að borga fyrir stæði og stöðvunarbrotagjöld og senda inn beiðni um endurupptökur.  Íbúar sem eiga heima á gjaldskyldum svæðum og rekstaraðilar eiga rétt á bílastæðakortum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Hægt er að lesa nánar um þetta hér neðar á síðunni.

Stöðvunarbrotagjöld

Stöðvunarbrotagjöld eru tvenns konar, aukastöðugjöld og stöðubrotagjöld. Aukastöðugjöld (stundum kallað stöðumælasektir) eru lögð á þegar ekki er greitt í gjaldskylt bílastæði. Stöðubrotagjöld eru aftur á móti lögð á þegar bíl eða öðru ökutæki er lagt ólöglega.

Teikning af konu sitja með penna og blað í hönd. Í kringum hana er þvottur, straujárn, tölva og þvottavél.

Íbúakort

Íbúakort er bílastæðakort fyrir fólk sem á heima á svæðum þar sem bílastæði eru gjaldskyld. Handhafi íbúakorts getur lagt bíl án endurgjalds í gjaldskyld stæði innan gildissvæðis kortsins.

 

Teikning af persónu halda á stóru greiðslukorti með lógó Reykjavíkurborgar.

Gjaldskylda

Það kostar ekki alltaf það sama að leggja bílnum. Í Reykjavík eru fjögur mismunandi gjaldsvæði og verðlagning mishá eftir svæðum. Hér getur þú skoðað kort af skiptingu gjaldsvæða, séð hvað kostar og hvernig er hægt að borga.

Teikning af persónu sem les blaðið og hjólar á hundrað krónu peningi..

Bílastæði fyrir hreyfihamlaða

Fólk með skerta hreyfigetu sem á erfitt með að komast til og frá almennum bílastæðum getur átt rétt á stæðiskorti. Með stæðiskorti er hægt að leggja í sérmerkt stæði fyrir hreyfihamlað fólk og leggja án endurgjalds í gjaldskyld bílastæði, auk þess sem það gefur heimild til að leggja án endurgjalds í bílahús á vegum Reykjavíkurborgar.

Teikning af konu í hjólastól og strák reyna að finna rétta leið á skjá spjaldtölvu.

Bílahús

Þú getur sótt um langtímastæði í bílahúsum borgarinnar fyrir bíla í daglegri notkun.  Athugið að ekki er hægt að áætla nákvæmlega hversu lengi þarf að bíða eftir langtímastæði, sjá nánar um biðlista í bílahúsum hér að neðan. Til að breyta áskrift sendið póst á bilahus@reykjavik.is.  

Teikning af starfsumsóknum.

Bílastæðasjóður Reykjavíkur

Borgartún 12-14, 105 Reykjavík

 

  • upplysingar@reykjavik.is
  • Sími: 411 1111 mánudaga til fimmtudaga frá 8:30-16:00 og föstudaga frá 8:30-14:30