Stöðvunarbrota​gjöld

Upplýsingar um stöðvunarbrotagjöld (oft kallað sektir), upphæðir, greiðslur, verklag og reglur.

Hér er hægt að greiða stöðvunarbrotagjald með netgreiðslu eða óska eftir endurupptöku ef þú telur gjaldið hafa verið ranglega lagt á.

Einnig er hægt að óska eftir að staðfesting á bráðatilfelli við Landspítala sé send á Bílastæðasjóð svo hægt sé að endurmeta stöðvunarbrotagjaldið.

Hvað eru stöðvunarbrotagjöld?

Stöðvunarbrotagjöld eru tvenns konar:

Aukastöðugjöld

  • Þegar ekki hefur verið greitt fyrir gjaldskyld bílastæði eða greitt hefur fyrir of stuttan tíma.

Stöðubrotsgjöld

  • Þegar ökutæki er lagt ólöglega.

Upphæðir stöðvunarbrotagjalda

Aukastöðugjald

Aukastöðugjald er 4.500 kr. Þetta er það sem oft er kallað stöðumælasekt. 

Ef gjaldið er greitt innan þriggja virkra daga frá álagningu er gefinn 1.100 kr. staðgreiðsluafsláttur.

Ef gjaldið er ógreitt 14 dögum eftir álagningu hækkar það úr 4.500 kr. í 6.750 kr. 

Gjöld sem enn eru ógreidd 28 dögum eftir álagningu hækka í 9.000 kr.

Stöðubrotsgjald

Stöðubrotsgjald er 10.000 kr. 

Þetta gjald er lagt á bíl þegar stöðvað eða lagt er undir bannmerki, á gangstétt, göngugötu, of nærri gangbraut eða við aðrar aðstæður þar sem ekki má leggja. 

Ef gjaldið er greitt innan þriggja virkra daga frá álagningu er gefinn 1.100 kr. staðgreiðsluafsláttur.

Ef gjaldið er ógreitt 14 dögum eftir álagningu hækkar það í 15.000 kr. Gjöld sem enn eru ógreidd 28 dögum eftir álagningu hækka í 20.000 kr.

Stöðubrotsgjald fyrir að leggja í stæði hreyfihamlaðra án heimildar

Stöðubrotsgjald að upphæð 20.000 kr. er lagt á bifreið þegar stöðvað eða lagt er í bílastæði fyrir hreyfihamlað fólk án þess að gildu stæðiskorti sé framvísað. 

Ef gjaldið er greitt innan þriggja virkra daga frá álagningu er gefinn 1.100 kr. staðgreiðsluafsláttur.

Sé gjaldið ógreitt 14 dögum eftir álagningu hækkar það í 30.000 kr. Sé það enn ógreitt eftir 28 daga hækkar það í 40.000 kr.

Endurupptaka og andmæli stöðvunarbrotagjalda

Er hægt að andmæla stöðvunarbrotagjaldi?

Já, ef stöðvunarbrotagjaldið er talið vera ranglega lagt á getur fólk óskað eftir endurupptöku innan 28 daga frá dagsetningu álagningar.

  • Eigendur/umráðamenn skrá sig inn með rafrænum skilríkjum í gegnum vefsíðu Bílastæðasjóðs.
  • Bílstjórar hafa samband við eiganda/umráðamann bílsins og biðja viðkomandi um að óska eftir endurupptöku á gjaldi. Það er líka hægt að hafa samband við þjónustuverið í síma 4111111.
  • Óska eftir endurupptöku á stöðvunarbrotagjaldi

Stöðvunarbrotagjöld við Landspítala

Hægt er að sækja um staðfestingu á bráðatilfelli á Island.is og senda á Bílastæðasjóð eða láta fylgja sem viðhengi þegar óskar er eftir endurupptöku.

Get ég óskað eftir rökstuðningi fyrir álagningu gjalds?

Heimilt er að óska eftir rökstuðningi fyrir álagningu stöðvunarbrotagjalds, innan 14 daga frá dagsetningu álagningar.

Senda þarf póst á netfangið upplysingar@reykjavik.is með eftirfarandi upplýsingum:

  • Í efnislínu á að skrifa að óskað sé eftir rökstuðningi fyrir álagningu stöðvunarbrotagjalds
  • Númer álagningar
  • Bílnúmer

Hver er munurinn á endurupptöku og andmælum?

Samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga hefur aðili máls andmælarétt áður en stjórnvald tekur ákvörðun í málinu. Samkvæmt 24. gr. sömu laga kemur fram að eftir að stjórnvald hefur tekið ákvörðun getur aðili máls óskað eftir að það sé tekið til meðferðar á ný, það er óskað er eftir endurupptöku. Þannig að þó flestir tali um að andmæla gjaldi þá er hið rétta að um er að ræða endurupptöku.

Verklag vegna endurupptöku

1. gr.

Heimilt er að óska eftir endurupptöku ákvörðunar um álagningu stöðvunarbrotagjalds innan 28 daga frá dagsetningu álagningar. Almennur afgreiðslutími er 2-4 vikur.

2. gr.

Þegar aðili máls er annar en skráður eigandi/umráðamaður bifreiðar einfaldar það afgreiðslu að nafn, kennitala, heimilisfang, símanúmer og tölvupóstfang liggi fyrir. Sé aðili máls eigandi/umráðamaður ökutækis einfaldar það afgreiðslu að símanúmer og tölvupóstfang liggi fyrir.

3. gr.

Mikilvægt er að með ósk um endurupptöku ákvörðunar fylgi þau gögn sem aðili máls hefur undir höndum sem geta styrkt málstað hans, s.s. afrit af keyptum tímamiða eða kvittun vegna viðgerðar/dráttarbifreiðar. Hægt er að skila inn gögnum vegna málsins með beiðni um endurupptöku, á netfang bilastaedasjodur@reykjavik.is eða með almennum pósti innan 7 daga. Eftir það fer málið í vinnsluferli. Ekki er þörf á að skila inn afriti af brotalýsingu (álagningarseðli).

4. gr.

Bílastæðasjóður getur aflað staðfestingar á þeim upplýsingum sem koma fram í ósk um endurupptöku ákvörðunar. Upplýsingar geta m.a. verið sóttar í þjóðskrá, símastæðaþjónustu, ökutækjaskrá og borgarvefsjá allt eftir eðli máls hverju sinni.

5. gr.

Bílastæðasjóður getur aflað upplýsinga hjá sýslumönnum vegna útgáfu og gildistíma stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða. Mikilvægt er að nafn og kennitala handhafa stæðiskorts fyrir hreyfihamlaða liggi fyrir sé það annar en skráður eigandi/umráðamaður bifreiðar.

6. gr.

Bílastæðasjóður leitar eftir umsögn álagningaraðila og nýtir ljósmyndir af vettvangi við endurupptöku ákvörðunar um álagningu.

7. gr.

Þegar óskað er endurupptöku ákvörðunar um álagningu stöðvunarbrotagjalds sem lögreglan hefur lagt á ökutæki verður erindið áframsent Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu til afgreiðslu.

8. gr.

Þegar ósk um endurupptöku hefur borist tekur álagningin áfram lögbundnum hækkunum skv. umferðarlögum á meðan þau eru í vinnslu. Við afgreiðslu máls fellur gjaldið niður sé erindið samþykkt en sé erindinu hafnað fer gjaldið aftur í þá upphæð sem það stóð í þegar ósk um endurupptöku barst að því undanskyldu að staðgreiðsluafsláttur er einungis veittur ef greitt er innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins. Aðilum er bent á að þeir eiga þess kost að greiða gjaldið þrátt fyrir ósk um endurupptöku og fá það endurgreitt ef fallist er á beiðni þeirra um niðurfellingu gjaldsins.

9. gr. Stöðvunarbrotagjöld við Landspítala

Þegar óskað er endurupptöku ákvörðunar stöðvunarbrotagjalda við Landspítala er aðila máls bent á að senda tölvupóst á staedi@landspitali.is og óska eftir að staðfesting á bráðatilfelli sé send til Bílastæðasjóðs.

 

 

Greiðsla stöðvunarbrotagjalda

Einstaklingar greiða svona:

Upplýsingar um gjald koma inná island.is. Um leið stofnast krafa í heimabanka.

Ekki er lengur settur miði undir rúðuþurrku.

  • Einstaklingar geta borgað stöðvunarbrotagjaldið (sektina) í heimabanka sínum eða umráðamanns.
  • Eða með netgreiðslu hér á vefsíðu Bílastæðasjóðs og er þá sett inn bílnúmer og dagsetning.
  • Greiða stöðvunarbrotagjald á vefnum (netgreiðsla)
  • Það er líka hægt að greiða með greiðsluseðil í banka eða í heimabanka til dæmis ef greiðandi er annar en eigandi eða umráðamaður en þá þarf upplýsingar um kröfunúmer af island.is. 

Hægt að nálgast þær upplýsingar hjá eiganda/umráðamanni eða í þjónustuverinu í síma 411 1111.

Fyrirtæki greiða svona:

Prókúruhafar fyrirtækja, félagasamtaka og stofnanna geta skráð sig inn á Ísland.is til að nálgast upplýsingar um gjöld. 

Athugið að prófkúruhafar þurfa að vera skráðir prófkúruhafar viðkomandi rekstrar hjá skattinum.

Prókúruhafar fyrirtækja geta skráð sig inn á mínar síður Reykjavíkurborgar til að senda inn beiðni um endurupptöku á stöðvunarbrotagjaldi.

Fyrirtæki geta sótt um fyrirtækjaaðgang með að senda póst á:

Hvernig borga ég stöðvunarbrotagjald í heimabankanum ef gjaldið er ekki á minni kennitölu?

1. Opnaðu formið „Greiðsluseðlar“ í heimabankanum þínum. Vertu með álagningarseðilinn eða miðann með gjaldinu (stöðumælasektina) við hendina.

2. Sláðu inn kröfulínuna eins og hún er á miðanum. Kröfulínan er neðst á miðanum og er sett upp svona:

  • Kennitala bílastæðasjóðs
  • Númer gjaldsins
  • Flokkur 03, banki 513, höfuðbók 66
  • Gjalddagi (passið að setja inn gjalddagann sem er á miðanum, ekki neina aðra dagsetningu)
  • Kennitala eiganda ökutækisins.

Þegar greitt er í heimabanka er best að nota vafra, ekki app. 

Er hægt að færa álagningu á milli aðila?

Álagning stöðvunarbrotagjalds miðast við skráðan eiganda/umráðamann samkvæmt ökutækjaskrá og er Bílastæðasjóði óheimilt að færa kröfu á milli aðila. Aðrir en skráðir eigendur/umráðamenn geta greitt álagningu í heimabanka.

Ef þú ert ekki eigandi getur þú greitt í heimabanka með því að velja Greiðslur > Greiðsluseðlar og slá inn kröfunúmer.

Upplýsingar um kröfunúmer má nálgast hjá eiganda/umráðamanni eða í þjónustuveri í síma 411 1111.

Mikilvægt er að kennitölu greiðanda sé ekki breytt heldur skal kröfunúmer slegið inn eins og það birtist á seðlinum.

Hvernig veit ég um álagningu þar sem ég fékk ekki álagningarmiða?

Álagningin kemur á island.is og í heimabanka eiganda/umráðamanns. Notendur geta skráð netfang/símanúmer til að fá hnipp frá island.is.

Það borgar sig því að vera með stillingarnar hjá island.is þannig að þú fáir skilaboð um nýjar tilkynningar. Þá er einnig hægt að veita öðrum umboð til að fá þessar upplýsingar.
 

Get ég borgað stöðvunarbrotagjald með millifærslu?

Það er ekki hægt að greiða stöðvunarbrotagjald (oft kallað stöðumælasekt) með millifærslu. 

Hvað um eldra fólk sem fær álagningu og eru ekki með heimabanka?

Stöðvunarbrotagjöld birtast á island.is og í heimabanka. Mælt er með að skoða stillingarnar hjá island.is þannig að skilaboð berist um nýjar tilkynningar.

Þá er einnig hægt að veita öðrum umboð þar til að fá þessar tilkynningar – það getur hentað fyrir eldri borgara og þá sem eru ekki með aðgengi að tölvu.