Gjaldsvæði bílastæða og útfærsla gjaldskyldu endurskoðuð

Meðal annars verður útfærsla á gjaldskyldu á sunnudögum tekin til endurskoðunar. Mynd/Arctic Images - Ragnar Th.
bílar í bílastæði

Borgarstjórn samþykkti að taka gjaldsvæði bílastæða og útfærslu gjaldskyldu til endurskoðunar á fundi sínum í dag. Einnig samþykkti borgarstjórn að fara í heildarendurskoðun á þeim verklagsreglum sem fylgt er þegar breytingar eru ákvarðaðar á stækkun gjaldskyldusvæða eða útfærslu á verðlagningu og tímamörkum sem þau fylgja hverju sinni.

Eftirfarandi tillögur voru samþykktar:

  • Gjald á gjaldsvæði P1 verði tekið til endurskoðunar og ráðist verði í að breyta hluta svæða P2 í P3 (þar sem ekki er gjaldskylda um kvöld og helgar).
  • Útfærsla á gjaldskyldu á sunnudögum verði tekin til endurskoðunar. Gjaldskylda verði endurskoðuð á íbúasvæðum með það að markmiði að gera íbúakort sveigjanlegri og einfalda umsóknarkerfið.
  • Ráðist verði í markvissa kynningu á bílastæðahúsum Reykjavíkurborgar og aðgengi að þeim.

Samráð við íbúa og hagsmunaaðila

Þegar vinnu við breytingarnar á gjaldskrá og gjaldskyldu er lokið skal senda þær í samráðsgátt áður en þær eru samþykktar enda snertir gjaldskylda alla sem koma til Reykjavíkur og íbúa borgarinnar, segir í tillögunum. Sérstaklega skal gera íbúum og hagsmunaaðilum viðvart á þeim svæðum sem breytingarnar hafa áhrif á.

Fleiri breytingartillögur komu fram við upphaflega tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins en hægt er að skoða upptöku af umræðunum á vef Reykjavíkurborgar.