Rekstraraðilakort

Rekstraraðilakort er fyrir rekstraraðila og veitir heimild til að leggja án endurgjalds í gjaldskyld bílastæði. Á þessari síðu eru upplýsingar um skilyrði og reglur fyrir rekstraraðilakorti.

Hér er hægt að sækja um, breyta eða segja upp rekstrarkorti og nálgast eyðublað fyrir samþykki fasteignareiganda fyrir að nýta rekstraraðilakortið.

Skilyrði fyrir rekstraraðilakorti

  • Starfsemi rekstraraðila fellur undir ÍSAT 2008 (atvinnugreinaflokkun) flokkar sem byrja á 47 eða 56.
  • Lögheimili reksturs skal vera utan gjaldsvæðis 1 en innan íbúakortasvæðis.
  • Umsækjandi skal vera eigandi reksturs og húsnæðis hans, eða hafa skriflega heimild frá eiganda þess til að sækja um rekstraraðilakort.
  • Húsnæði rekstraraðila má ekki fylgja réttur til notkunar á bílastæði innan lóðar, hvort heldur er til einkanota eða í sameign, samkvæmt deiliskipulagi, lóðarleigusamningi, mæliblaði, lóðaruppdrætti, staðfestri eignaskiptayfirlýsingu eða skráningu í fasteignaskrá, sbr. reglur um íbúakort.
  • Umsækjandi skal vera skráður eigandi eða umráðamaður ökutækisins sem skal bera íslensk skráningarmerki og skal vera heimilt að leggja á götum og í almenningsbifreiðarstæðum samkvæmt ákvæðum umferðarlaga og lögreglusamþykktar.
  • Umsækjandi skal ekki vera í skuld við Bílastæðasjóð Reykjavíkur sem er komin til milliinnheimtu eða löginnheimtu og skal hafa að fullu greitt öll rekstraraðilakortagjöld frá fyrri tímabilum.

Ef umsækjandi á ekki húsnæðið undir reksturinn þarf að skila inn undirrituðu samþykki frá eiganda húsnæðis.

Endurnýja rekstraraðilakort

Rekstraraðilakort gilda alla jafna í eitt ár og eru ekki í áskrift. Sækja þarf um nýtt rekstraraðilakort þegar það eldra fer að renna út. 

Breyta rekstraraðilakorti

Ef heimilisfang rekstrar er á mörkum tveggja íbúakortasvæða er hægt að óska eftir að breyta hvaða íbúakortasvæði er í gildi. Það er líka hægt að óska eftir því að breyta bílnúmerinu á rekstraraðilakortinu. Þú fyllir út form og sendir inn.

Uppsögn

Ef handhafi rekstraraðilakorts hefur af einhverjum ástæðum ekki lengur not fyrir rekstraraðilakort er hægt að segja því upp.  

Þá ógildum við rekstraraðilakortið og stöðvum frekari greiðslur ef það var í greiðsludreifingu og endurgreiðum eftir aðstæðum heila greidda mánuði sem hafa ekki verið nýttir. 

Þú segir upp rekstarkortinu með því að fylla út form: