Bakkinn

Félagsmiðstöð fyrir 10–16 ára

Breiðholtsskóli, Arnarbakki 1-3
109 Reykjavík

Framhlið Breiðholtsskóla

Félagsmiðstöðin Bakkinn er staðsett í Breiðholtsskóla. Félagsmiðstöðin hefur verið starfrækt frá árinu 2010 og þjónustar börn og unglinga á aldrinum 10-16 sem búsett eru í Bakkahverfi. Bakkinn heyrir undir félagsmiðstöðina Miðberg.

Markmið félagsmiðstöðvarinnar Bakkans er að bjóða upp á fjölbreytt, skapandi og skemmtilegt starf fyrir börn og unglinga í hverfinu. Í því felst að skapa jákvætt andrúmsloft og umhverfi í frístundastarfi þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskipta- og félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar. Lagt er upp með að bjóða upp á fjölbreytt viðfangsefni í hverjum mánuði sem höfðar til ólíkra barna og unglinga með mismunandi áhugasvið og tryggja þeim öruggt umhverfi sem þeim líður vel í. Að auki er mikil áhersla lögð á fræðslu gegn fordómum og forvarnir gegn vímuefnum.

Forstöðumaður er Herdís Einarsdóttir, s:664-7600

Aðstoðarforstöðumaður er Sunna Guðríður Vilhjálmsdóttir, s: 695-5028

 

Bakkinn

Viltu vita meira um  Bakkann? Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar.

Opnunartímar

5.-6. bekkur

Mánudagar: 14:00-16:00

Föstudagar: 17:00-18:30

7. bekkur

Miðvikudagar: 17:00-19:00

Föstudagar: 17:00-18:30

8.-10. bekkur

Mánudag: 19:30-21:45

Miðvikurdag: 19:30-21:45

Föstudag: 19:30-22:45

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í félagsmiðstöðinni Bakkanum má finna á heimasíðu Breiðholtsskóla

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​