Breiðholtsskóli
Grunnskóli, 1.-10. bekkur
Arnarbakki 1–3
109 Reykjavík
Skóladagatal Breiðholtsskóla
Hér finnur þú skóladagatal Breiðholtsskóla. Í skóladagatali eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir foreldra og forráðamenn.
Matur í grunnskólum
Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar veturinn 2024-2025 en mikilvægt er fyrir skólann að hafa áfram yfirsýn, halda utan um upplýsingar um ofnæmi og óþol og takmarka matarsóun. Því þarf eins og áður að skrá nemendur í mataráskrift.
Þeir nemendur sem voru skráðir í fyrra verða sjálfkrafa skráðir í áskrift en aðrir þurfa að skrá sig. Breyting á skráningu fer fram á matur.vala.is.
Um Breiðholtsskóla
Í Breiðholtsskóla eru um 450 nemendur í 1.-10. bekk og 73 starfsmenn. Skólinn er í hjarta Breiðholtshverfis og stendur við Arnarbakka 1 - 3. Við skólann er góð útisundlaug og stórt íþróttahús. Lögð er áhersla á árangur fyrir alla nemendur og einkunnarorðin ábyrgð, traust og tillitssemi eru leiðarljós í daglegu starfi skólans. Skólinn státar af fjölmenningarlegu samfélagi nemenda, foreldra og starfsmanna.
Frístundaheimilið Bakkasel er fyrir börn í 1.-4. bekk í Breiðholtsskóla og félagsmiðstöðin Bakkinn býður upp á skemmtilegt og fjölbreytt starf fyrir börn og unglinga.
Stjórnendur í Breiðholtsskóla
- Skólastjóri er Ásta Karen Rafnsdóttir
- Aðstoðarskólastjóri er Björgvin Þór Þórhallsson
- Deildarstjóri yngra stigs er Hulda Björg Einarsdóttir
- Deildarstjóri eldra stigs er Kristján Arnar Ingason
- Deildarstjóri stoðþjónustu er Kolbrún Ósk Albertsdóttir
Stoðþjónusta í Breiðholtsskóla
Stoðþjónusta Breiðholtsskóla er samheiti yfir alla þá stoðþjónustu sem styður við almenna kennslu innan skólans. Stoðþjónusta getur falist í ráðgjöf til kennara varðandi kennslu eða annað er snýr að nemendum.
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Tengiliður Breiðholtsskóla er: Kolbrún Ósk Albertsdóttir
Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is
Skólastarfsemi
Skólaráð
Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans.
Foreldrasamstarf
Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar.
Skólahverfi Breiðholtsskóla
Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Breiðholtsskóla.