Ægisborg

Leikskóli

Ægisíða 104
107 Reykjavík

Hús leikskólans Ægisborgar og hluti af leikvelli

Um leikskólann

Opnunartími Ægisborgar er frá 7:30 til 16:30

Í Ægisborg eru 75 börn sem dvelja á fjórum deildum. Deildirnar eru aldursskiptar og eru yngstu börnin í Koti, sem er sér hús á lóðinni. Næst yngstu börnin eru á Fjörudeild, svo á Bárudeild og þau elstu eru á Öldudeild. Starfsmenn eru um 22-25

Leikskólastjóri er Auður Ævarsdóttir

Aðstoðarleikskólastjóri er Ásmundur Kristberg Örnólfsson

 

Hugmyndafræði

Gildi Ægisborgar eru virðing, vinátta og gleði

 

Í Ægisborg er höfuðmarkmið leikskólastarfsins að njóta lífsins og er þar leitast við að skapa jákvætt og skemmtilegt lærdómssamfélag barna og fullorðinna. Starfið byggir á fjórum hornsteinum sem eru leikur, hreyfing, ritmálsörvun og skapandi starf. Leikur er besta námsleið æskuáranna og eftirsóknarverður þáttur barnamenningar. Að tilheyra stórum hóp og þekkja sjálfan sig innan hans er hverjum manni mikilvægt og stórt viðfangsefni. Í Ægisborg gefast fjölmörg tækifæri til að æfa sig í að vera virkur þátttakandi í lifandi samfélagi, meðal annars með því að hlæja saman, hugga, hrósa,leika, fá lánað, taka tillit, ræða saman og taka ákvarðanir. 

Leikskólastarf

Skólanámskrá

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Ægisborgar? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi. 

Starfsáætlun

Hvað er framundan á Ægisborg? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira. 

 

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar. 

Leikskólakennari og barn í bleikri regnkápu í andyrinu á leikskólanum Ægisborg

Miðstöð Ægisborgar

Leikskólinn Ægisborg tilheyrir Vesturmiðstöð. Vesturmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta.   

 

Myndir frá Ægisborg